Sérfróðir meðdómsmenn
Umsókn
Sérfróðir meðdómsmenn eru tilnefndir úr hópi umsækjenda að undangenginni opinberri auglýsingu. Öllum þeim sem uppfylla kröfur er frjálst að leggja inn umsókn.
Umsóknir um tilnefningu skal senda rafrænt í gegnum vefgátt dómstóla. Leiðbeiningar um hvernig er sótt um í gegnum vefgáttina má finna hér.
Með umsókninni þurfa að fylgja:
Ferilskrá.
Staðfesting hæsta námsstigs á viðkomandi sérfræðisviði.
Umboð fyrir dómstólasýsluna til þess að sækja sakavottorð. Veita þarf dómstólasýslunni umboð til að sækja sakavottorð með því að fylla út eyðublað og senda með umsókninni. Ná í eyðublað.
Dómstólasýslan varðveitir allar umsóknir og tilnefnir sérfróða meðdómsmenn úr hópi umsækjenda eftir þörfum á hverjum tíma.
Hvert er hlutverk sérfróðra meðdómsmanna?
Í sumum dómsmálum þarf að leysa úr atriðum sem dómari hefur ekki sérþekkingu á, t.d. á sviði læknisfræði eða verkfræði. Þá getur dómari kallað til sérfróðan meðdómsmann sem hefur sérþekkingu og reynslu á því sérfræðisviði sem á reynir í málinu til að taka sæti í fjölskipuðum dómi. Sérfróðir meðdómsmenn geta verið kallaðir til við meðferð mála fyrir héraðsdómi og Landsrétti.
Hlutverk sérfróðra meðdómsmanna er að:
Yfirfara gögn málsins á grundvelli sérþekingar sinnar.
Taka afstöðu til þeirra atriða sem varða sérsvið þeirra.
Almenn hæfisskilyrði
Í 3. mgr. 39. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla er fjallað um þau almennu hæfisskilyrði sem sérfræðingur þarf að uppfylla til að geta hlotið tilnefningu dómstólasýslunnar:
hafa næga þekkingu og reynslu á viðkomandi sérsviði,
búa yfir nægilegum þroska og andlegu og líkamlegu heilbrigði,
vera íslenskur ríkisborgari, lögráða og orðinn 25 ára.
Hafa forræði á búi sínu (má ekki hafa misst það vegna gjaldþrotaskipta).
hefur hvorki hlotið fangelsisdóm eftir 18 ára aldur né sýnt af sér háttsemi sem getur grafið undan trausti almennings til hans.
Tilnefning dómstólasýslunnar
Sérfróðir meðdómsmenn eru tilnefndir til fimm ára í senn. Eftir fimm ár getur viðkomandi óskað eftir að tilnefning verði endurnýjuð.
Tilnefningin fellur sjálfkrafa niður ef sá sem tilnefndur er missir almennt hæfi sitt. Jafnframt getur dómstólasýslan fellt tilnefninguna niður ef veigamiklar ástæður mæla með því eða sá sem tilnefndur er óskar þess.
Sá sem tilnefndur hefur verið í hóp sérfróðra meðdómsmanna skal undirrita drengskaparheit um að hann muni jafnan gegna slíkum störfum af samviskusemi og óhlutdrægni og fara í öllu að lögum.
Óheimilt er að tilnefna starfsmann dómstóla í hóp sérfróðra meðdómsmanna.
Listi yfir sérfróða meðdómsmenn
Þeir umsækjendur sem tilnefndir verða fara á lista sem er aðgengilegur starfsfólki dómstólanna. Umræddur listi yfir sérfróða meðdómsmenn er einnig birtur á vef dómstólasýslunnar og er uppfærður reglulega.
Þeir sem eru á listanum geta verið kvaddir til þegar mál krefst sérþekkingar á þeirra sviði. Ekki er hægt að veita fullvissu fyrir því hvort eða hversu oft sérfróður meðdómsmaður kann að vera kallaður til.
Lesa meira:
Fjallað er um sérfróða meðdómsmenn í 39. grein laga um dómstóla.
Reglur dómstólasýslunnar. Í reglum um sérfróða meðdómsmenn er fjallað um þóknun og greiðslu útlagðs kostnaðar.