Fara beint í efnið
Dómstólasýslan Forsíða
Dómstólasýslan Forsíða

Dómstólasýslan

Skiptastjórar og umsjónarmenn

Hinn 1. janúar 2024 tóku gildi reglur dómstólasýslunnar nr. 5/2024 um fjárhæð skiptatrygginga og skipun skiptastjóra og umsjónarmanns með nauðasamningsumleitunum.

Samkvæmt 3. gr. reglnanna skal haldin skrá við hvern héraðsdómstól yfir þau sem óska eftir skipun sem skiptastjórar eða umjónarmenn með nauðsamningsumleitunum og skal skráin uppfærð reglulega.

Upplýsingar um skiptastjórn þrotabúa

Í 5. gr. reglnanna er kveðið á um að dómstólasýslan skuli í ársbyrjun hvert ár birta upplýsingar um hversu mörgum búum hverjum skiptastjóra hefur verið falið að skipta á árinu hjá hverjum og einum héraðsdómstól og samtals á þeim öllum svo og upplýsingar um það í hversu mörgum búum hver skiptastjóri hefur ekki tilkynnt skiptalok fyrir árslok.

Hér má sjá upplýsingar um fjölda þrotabúa sem hverjum og einum skiptastjóra hefur verið falið að skipta, bæði hjá hverjum og einum héraðsdómstól og samtals hjá þeim öllum:

Hér má sjá upplýsingar yfir það í hversu mörgum búum hver skiptastjóri hefur ekki tilkynnt skiptalok í fyrir árslok 2025 og 2024:

Reglur dómstólasýslunnar