Dómkvaddir matsmenn
Dómkvaddir matsmenn eru sérfræðingar sem eru kvaddir til af dómstólum fyrir tilstilli málsaðila eða dómara til að veita sérfræðiálit sitt á tilteknum atriðum í máli:
Dæmi um slík atriði:
hver er líkleg orsök vatnsleka í fasteign og hvað það myndi kosta að bæta úr tjóni vegna lekans,
hverjar eru líkamlegar afleiðingar bílslyss sem stefnandi máls lenti í,
forsjárhæfni foreldra í forsjármáli,
mat á geðheilbrigði ákærða í sakamáli með tilliti til þess hvort hann teljist sakhæfur.
Heimilt er að dómkveðja matsmann til að framkvæma mat á nánast öllum matsatriðum sem þarfnast sérfræðiþekkingar á öðrum sviðum en lögfræði.
Skilyrði til að verða dómkvaddur matsmaður
Dómkvaddir matsmenn þurfa að:
vera orðnir 20 ára,
hafa nauðsynlega kunnáttu og þekkingu á ákveðnu sérsviði, til dæmis í dýralækningum, pípulagningum, sálfræði, verkfræði og fleira,
vera að öllu leyti óaðfinnanlegt vitni um þau atriði sem á að meta,
hafa nauðsynlega kunnáttu til að leysa starfann af hendi.
Matsgerð
Matsmenn þurfa semja rökstudda matsgerð og greina frá þeim sjónarmiðum sem álit þeirra er reist á.
Mikilvægt er að dagsetja matsgerð og undirrita hana.
Ef matsbeiðandi óskar getur dómari ákveðið að matsmaður þurfi ekki að semja skriflega matsgerð heldur þurfi hann að mæta fyrir dóm áður en aðalmeðferð fer fram.
Ef aðili sættir sig ekki við matsgerðina getur hann krafist dómkvaðningar yfirmatsmanna til að gera yfirmat og endurmeta þau atriði sem fjallað var um í matsgerðinni. Yfirmatsmenn þurfa að vera fleiri en þeir sem sömdu matsgerðina.
Val á matsmanni
Oftast koma aðilar málsins sér saman um matsmann en dómari kveður hann svo til starfa. Ef aðilar komast ekki að samkomulagi leggur dómari til matsmann við aðila, sem geta þá gert athugasemdir við hæfi viðkomandi, til dæmis ef hann er tengdur aðilum. Lögmannafélag Íslands hefur umsjón með lista yfir dómkvadda matsmenn. Listinn er eingöngu sendur til lögmanna og starfsmanna dómstóla.
Mikilvæg atriði
Mikilvægt er að matsmenn gæti hlutleysis og að þeir láti vita ef þeir uppfylla ekki lagaskilyrði til að vera dómkvaddir.
Matsmenn þurfa að boða aðila eða lögmenn þeirra til fundar með skriflegum hætti.
Vettvangur fundanna þarf að vera ásættanlegur, til dæmis skrifstofa, læknastofa, fasteign, skip o.s.frv. Matsmaður stýrir matsfundunum og ákveður fjölda funda.
Í sumum tilvikum getur verið leyst úr ýmsum hagnýtum atriðum utan matsfunda, til dæmis með tölvupósti. Í slíkum samskiptum er mikilvægt að allir aðilar málsins hafi vitneskju um þau samskipti og geti komið sínum sjónarmiðum að.
Kostnaður
Dómkvaðning matsmanna er kostnaðarsamt úrræði. Sá aðili sem óskar dómkvaðningar greiðir að jafnaði kostnað af vinnu matsmanns en kann þó að fá hann til baka ef hann vinnur málið og fær tildæmdan málskostnað.
Námskeið
Dómstólasýslan og Lögmannafélag Íslands standa fyrir námskeiði fyrir dómkvadda matsmenn. Námskeiðin eru á hverju hausti og eru auglýst á vef Lögmannafélags Íslands og á vef dómstólanna.
Námskeiðin eru ætluð öllum þeim sem hafa verið matsmenn eða vilja gefa kost á sér sem matsmenn fyrir dómi á sínu sérsviði. Á námskeiðinu fylgir Matsbók – Leiðbeiningar fyrir dómkvadda matsmenn sem einnig er hægt að kaupa hjá Lögmannafélaginu.
Í bókinni er farið yfir hlutverk matsmanns, feril matsmáls frá upphafi til enda og hvað matsmenn skuli varast.
Um matsgerðir í lögum
Sjá IX. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.
Námskeið fyrir matsmenn
Lögmannafélag Íslands og dómstólasýslan standa fyrir námskeiði fyrir dómkvadda matsmenn.
Nánari upplýsingar um námskeið hjá Lögmannafélagið Íslands