Fara beint í efnið

Þetta vefsvæði er í vinnslu. Opinber vefur er

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Dómstólar Forsíða
Dómstólar Forsíða

Dómstólar

Dómstig

Dómstigin á Íslandi eru þrjú. Öll mál koma fyrst til úrlausnar hjá héraðsdómstólum sem eru lægsta dómstigið.

Hægt er að skjóta ákveðnum úrlausnum héraðsdómstólanna til æðra dómstigs, Landsréttar eða beint til Hæstaréttar að uppfylltum ströngum skilyrðum.

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur fer með æðsta dómsvaldið og er fordæmisgefandi dómstóll. Einungis er hægt að áfrýja málum til Hæstaréttar að uppfylltum ströngum skilyrðum.

Í Hæstarétti eiga sæti sjö dómarar. Fimm dómarar taka þátt í meðferð máls hverju sinni, en þó sjö í sérlega mikilvægum málum. Þrír dómarar taka að jafnaði ákvörðun um áfrýjunarleyfi og um hvort kæra verði tekin til meðferðar.

Skoða vefsíðu Hæstaréttar

Lands­réttur

Landsréttur er svokallað millidómstig, það er áfrýjunardómstóll sem skipaður hefur verið á milli héraðsdómstólanna og Hæstaréttar. Landsréttur er staðsettur á höfuðborgarsvæðinu en tekur til landsins alls.

Fimmtán dómarar eiga sæti við Landsrétt og taka þrír dómarar þátt í meðferð máls fyrir dómi, með þeim undanteknungum sem mælt er fyrir um í lögum um meðferð einkamála og lögum um meðferð sakamála. Þrír dómarar taka ákvörðun um áfrýjunarleyfi og hvort kæra verði tekin til meðferðar.

Skoða vefsíðu Landsréttar

Héraðs­dóm­stólar

Héraðsdómstólarnir eru átta talsins og saman mynda þeir lægsta dómstigið. Öll mál koma því fyrst til úrlausnar fyrir einhverjum af héraðsdómstólum.

Að uppfylltum ákveðnum skilyrðum er hægt að skjóta úrlausnum héraðsdómstólanna til æðra dómstigs, þá til Landsréttar og í undantekningartilfellum beint til Hæstaréttar. Alls eiga 42 dómarar sæti við héraðsdómstólana og tekur einn héraðsdómari þátt í meðferð máls fyrir dómi, með þeim undantekningum sem mælt er fyrir um í lögum um meðferð einkamála og lögum um meðferð sakamála.

Skoða vefsíðu héraðsdómstólanna

Endurupp­töku­dómur

Endurupptökudómur er sérdómstóll sem sker úr um hvort heimila skuli endurupptöku dómsmála sem dæmd hafa verið í héraðsdómi, Landsrétti eða Hæstarétti.

Endurupptökudómur hefur aðsetur hjá dómstólasýslunni að Suðurlandsbraut 14, 108 Reykjavík.

Meira um endurupptökudóm