Rafræn sending gagna
Yfirlit yfir gáttir sem dómstólar nota við sendingu og móttöku rafrænna gagna
Heimilt er að senda dómstólum tilkynningar og gögn á rafrænu eða stafrænu formi, sbr. 1. gr. a. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og 2. gr. a. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Dómari getur þó ákveðið að frumrit gagns verði lagt fram í dómi telji hann það nauðsynlegt svo sem fyrir sönnunarfærslu málsins.
Sjá nánar í reglum dómstólasýslunnar um form, afhendingarmáta og staðfestingu skjala í dómsmálum nr. 1662/2024 og ákvörðun dómstólasýslunnar um skjöl sem berast skuli dómstóli í gegnum réttarvörslugátt.
Ef upp koma vandamál við notkun ætti að hafa samband við viðkomandi dómstól.
Aðrar gáttir en réttarvörslugáttin eru tímabundnar lausnir þar til réttavörslugáttin hefur verið þróuð og innleidd.