Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Dómstólar Forsíða
Dómstólar Forsíða

Dómstólar

Mismunandi tegundir mála fyrir héraðsdómi

Dómsmálum sem rekin eru fyrir héraðsdómstólum má í megindráttum skipta í tvo flokka, annars vegar einkamál og hins vegar sakamál.

Hver er munurinn á einkamálum og sakamálum?

Sakamál

Í sakamálum er skorið úr um sekt þess sem hefur verið sakaður um refsivert brot og viðkomandi ákveðin viðeigandi refsing ef fundinn sekur.

  • Ákæruvaldið, eða handhafar þess, höfðar sakamál með því að gefa út ákæru á hendur ákærða.

  • Ákærði er sá sem er ákærður fyrir refsivert brot í sakamáli. Ákærði getur verið einstaklingur eða lögaðili (fyrirtæki).

  • Brotaþoli telst ekki á meðal aðila sakamáls en kemur fyrir dóm sem vitni. Hafi brotaþoli gert bótakröfu á hendur ákærða á hann hins vegar aðild að þeim þætti málsins sem snýr að bótakröfunni.

Lög um meðferð sakamála nr. 88/2008 gilda um meðferð sakamála hjá lögreglu, ákæruvaldi og fyrir dómstólum.

Nánari upplýsingar um sakamál í héraðsdómi.

Einkamál

Önnur dómsmál en sakamál teljast einkamál. Einkamál snúast fyrst og fremst um úrlausn ágreiningsmála á milli tveggja eða fleiri aðila. Einkamálum má í grófum dráttum skipta í almenn einkamál og önnur einkamál.

Almenn einkamál

Úrlausnarefni þeirra geta verið mjög fjölbreytileg. Sem dæmi um almenn einkamál má nefna:

  • skuldamál,

  • skaðabótamál af ýmsum toga,

  • forsjármál,

  • landamerkjamál,

  • fasteignakaupamál.

Aðilar að almennu einkamáli geta verið einstaklingar eða lögaðilar. Þá geta ríkið og stofnanir þess einnig verið aðilar að einkamáli.

Um meðferð almennra einkamála fyrir dómstólum gilda lög um meðferð einkamála nr. 91/1991. Stundum gilda ákveðnar sérreglur um málsmeðferðina. Sem dæmi má nefna að í barnalögum nr. 76/2003 eru sérstakar reglur um málsmeðferð þegar mál snúast um forsjá barna og faðerni.

Nánari upplýsingar um almenn einkamál í héraðsdómi.

Önnur einkamál

Ýmis önnur dómsmál sem koma fyrir dómstóla teljast einnig til einkamála. Þetta eru til dæmis mál sem varða:

  • kröfur um gjaldþrotaskipti

  • kröfur um opinber skipti á dánarbúum,

  • nauðungarsölu á fasteign,

  • þinglýsingu,

  • aðfarargerðir hjá sýslumanni.

Ýmis sérlög á borð við lög um gjaldþrotaskipti o.fl., lög um nauðungarsölu og lög um aðför gilda um önnur einkamál eftir því sem við á. Í sérlögum eru oft sérstakar reglur um málsmeðferðina fyrir dómi sem bregða að einhverju leyti frá almennum reglum laga um meðferð einkamála, til dæmis um það hvernig málin verða lögð fyrir dóm, hvar þau verða höfðuð, fresti sem hægt er að veita o.s.frv. Þegar sérreglunum sleppir gilda almennar reglur laga um meðferð einkamála.