Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Dómstólar Forsíða
Dómstólar Forsíða

Dómstólar

Málsmeðferð ef ákærði mætir ekki við þingfestingu máls

Sumum málum má ljúka með dómi þótt ákærði mæti ekki þegar málið er þingfest. Það kallast útivist þegar ákærði mætir ekki. Ef búið er að birta ákæru og fyrirkall með lögmætum hætti og ákærði hefur ekki boðað lögmæt forföll má yfirleitt búast við því að litið verði á fjarvist hans sem játningu. Málið verður þá dæmt eftir þeim gögnum sem liggja fyrir í málinu. Þetta kallast útivistarmeðferð.

Máli má ljúka með þessum hætti ef:

  • brot ákærða þykir ekki varða meira en sex mánaða fangelsi, upptöku eigna og sviptingu réttinda. Dómari þarf jafnframt að telja gögnin í málinu nægileg til sakfellingar eða

  • ákærði hefur áður mætt fyrir dóm við rannsókn málsins og játað brotið skýlaust. Dómari þarf að telja játninguna trúverðuga og refsing fyrir brotið má ekki vera meiri en eins árs fangelsi.

Slíkum dómi er ekki hægt að áfrýja en hægt er að óska endurupptöku málsins innan fjögurra vikna frá því að dómurinn var birtur fyrir ákærða eða kveðinn upp ef ekki var þörf á að birta hann.

Ef dómfelldi var ekki viðstaddur uppkvaðningu dóms

Ef niðurstaða dóms felur eingöngu í sér sekt (og eftir atvikum upptöku eigna) sem er undir áfrýjunarfjárhæð 1.473.007 krónur er ekki þörf á að birta niðurstöðu dómsins fyrir dómfellda. Í því tilviki myndi viðkomandi fyrst vita af dómsniðurstöðunni við innheimtu sektarinnar.

Dómar í slíkum málum eru ekki gefnir út á vefsvæði dómstólsins samkvæmt reglum um útgáfu dómsúrlausna á vefsíðum dómstóla.

Feli niðurstaða dóms í sér sekt umfram áfrýjunarfjárhæð, fangelsi og/eða sviptingu réttinda (s.s. ökuréttinda) sér lögreglan um að birta dóminn fyrir dómfellda, ýmist í eigin persónu eða í stafrænu pósthólfi.

Dómar í slíkum málum eru gefnir út á vefsvæði viðkomandi dómstóls. Meginreglan er sú að dómar eru gefnir út undir nafni.

Endurupptaka útivistarmáls

Útivistarmálum er ekki hægt að áfrýja til æðri dóms en í vissum tilvikum er hægt að fá þau endurupptekin. Verði mál endurupptekið gefst viðkomandi tækifæri til að mæta í héraðsdóm þegar málið verður tekið fyrir á nýjan leik og taka til varna í málinu.

  • Í þessu felst að mál sem hefur verið endurupptekið verður tekið til skoðunar og umfjöllunar að nýju.

  • Slík málsmeðferð getur leitt til þess að fallist verði á sjónarmið stefnda eða ákærða og það breytt úrslitum málsins að öllu eða einhverju leyti.  

Skilyrði endurupptöku

Hafi útivistardómur gengið í sakamáli getur dómfelldi krafist þess að málið verði tekið aftur upp í héraðsdómi innan fjögurra vikna frá því að:

  • dómur var birtur honum af lögreglu, annað hvort í starfrænu pósthólfi eða eigin persónu eða

  • dómurinn var kveðinn upp ef birtingar var ekki þörf

Krafa um endurupptökubeiðni verður að berast héraðsdómi innan fjögurra vikna frestsins. Ef fresturinn er liðinn er ekki hægt að endurupptaka málið nema með úrskurði Endurupptökudóms.

Ekki er hægt að krefjast endurupptöku á máli ef ákæruvaldið hefur þegar áfrýjað málinu.

Krafa um endurupptöku sakamáls

Kröfunni þarf að beina til þess dómstóls þar sem útivistardómur gekk. Í kröfunni þarf að koma skýrt fram:

  • hvaða mál það er sem krafist er endurupptöku á,

  • hverra breytinga er óskað á fyrri niðurstöðu og

  • á hvaða sönnunargögnum, rökum og réttarreglum krafan er byggð.

Ef beiðni er ófullnægjandi, berst röngum héraðsdómstól, frestur er liðinn eða búið er að áfrýja málinu synjar dómari um endurupptökuna. Að öðrum kosti boðar dómari ákæranda og ákærða fyrir dóm til að taka beiðnina fyrir. Ef ákærði sækir ekki þing þegar endurupptöku beiðni hans er tekin fyrir telst hún fallin niður. Aðeins er hægt að krefjast endurupptöku einu sinni.

Réttaráhrif kröfu um endurupptöku:

Ef mál er endurupptekið falla réttaráhrif dóms niður þar til því er lokið á ný í héraði.

Ef ákærandi krefst þess getur dómari vikið frá þessu ef það telst nauðsynlegt til verndar lífi, heilsu eða eignum einstakra manna eða almennings, eða þykir annars óviðurkvæmilegt að fella réttaráhrifin niður.

Hvað ef ekki er hægt að ljúka máli með útivist?

Ef brot ákærða þykja varða sex mánaða fangelsi eða meira má hann eiga von á því að verða handtekinn og færður fyrir dóm ef hann mætir ekki þegar málið er þingfest. Málinu er þá frestað og verður tekið aftur fyrir þegar ákærði kemur fyrir dóminn.