Fara beint í efnið

Heimilt er að veita þeim styrk sem hafa fengið námsorlof af fé því er veitt er til námsorlofa á fjárlögum hverju sinni. Styrkirnir eru ætlaðir til að standa straum af sérstökum kostnaði við að sækja og stunda námið, svo sem vegna ferðalaga, skólagjalda, húsnæðiskostnaðar og fleira. Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir orlofsþegum styrkmöguleika.

Ef heimild er veitt til þess að nýta námsorlof til þess að stunda fjarnám við viðurkennda menntastofnun eða þjálfun, t.d. vegna tækniþróunar, án leyfis frá starfi eða lækkunar vinnuskyldu, er heimilt að veita styrk til slíks náms til að mæta útlögðum kostnaði, s.s. vegna skólagjalda og tiltekins ferðakostnaðar.