Fara beint í efnið

Námsorlof kennara og stjórnenda framhaldsskóla

Algengar spurningar

Get ég fengið orlof tvisvar?

Miðað við fjölda orlofa og fjölda umsókna þá eru þeir umsækjendur sem hafa ekki hlotið orlof áður í forgangi. Vanalega eru ekki veitt námsorlof þeim sem hafa hlotið orlof áður (samtals í eitt ár), hvort sem um grunnskólaorlof eða framhaldsskólaorlof sé að ræða.

Hver er munurinn á námsorlofi kennara og námsorlofi sem skólameistari sækir um fyrir hönd kennara?

Þegar kennarar sækja um sjálfir, vegur starfsaldur þungt í þeirra umsókn. Hafi kennarar stuttan starfsaldur, er ólíklegt að þær umsóknir hljóti brautargengi. Kennarar með stuttan starfsaldur eru hvattir til að óska eftir því að skólameistari sæki um skólameistaraorlof fyrir sig. Skólameistaraorlofið er hugsað til að hvetja unga kennara, náms-og starfsráðgjafa og stjórnendur til að sækja sér viðbótamenntun sem styrkir skólann og skólastarfið.

Verð ég að fara í háskólanám?

Miðað er við framhaldsnám eða endurmenntun við viðurkennda menntastofnun innanlands eða í útlöndum. Skráning í framhaldsnám þarf ekki að liggja fyrir í umsókn, en skýr áætlun um framhaldsnám er forsenda góðrar umsóknar. Skráning í námið þarf þó að liggja fyrir áður en námsorlof hefst.

Verð ég að fara í nám í mínu fagi?

Miðað er við að kennarar séu að afla sér framhaldsnáms eða endurmenntunar í sínu fagi. Ef um nám í öðru fagi er að ræða þarf að liggja skýr rökstuðningur fyrir því að slíkt sé hugsað til að mæta þörfum skólans og / eða nemenda.

Er einungis farið eftir starfsaldri við val á umsækjendum um námsorlof?

Margir þættir spila inn í val á umsækjendum um námsorlof. Starfsaldur er einn þeirra þátta (í námsorlofsumsóknum kennara, þó ekki skólameistaratilnefningunum) en fleiri þættir spila inn í mat umsókna (gæði umsóknar, dreifing á milli skóla, kyns, námsgreina o.fl). Mikilvægt er að vanda skrif umsóknar og hafa skýra hugmynd um hvernig skal verja námsorlofinu. Valnefnd les allar umsóknir og tekur marga þætti til umfjöllunar í mati sínu.
Lesa um mats- og úthlutunarferlið

Er öll kennslureynsla talin með?

Fyrst og fremst er horft til kennslu við framhaldsskóla, eins og kveðið er á um í reglugerð.

Geta skólar verið vissir um að fá námsorlof á hverju ári?

Skólar geta ekki vænst ákveðins fjölda orlofa á hverju ári. Umsóknir eru margfalt fleiri en námsorlof og reynt er að tryggja dreifingu á milli skóla með sanngjörnu móti. Aðrir þættir spila inn í niðurstöðuna, svo sem fjöldi umsækjenda frá hverjum skóla, starfsaldur þeirra og gæði umsókna.

Get ég mótmælt niðurstöðunni?

Ákvörðun nefndarinnar telst til stjórnsýsluákvarðana og er því endanleg.