Námsorlof kennara og stjórnenda framhaldsskóla
Námsorlofsnefnd
Námsorlofsnefnd er skipuð þremur fulltrúum auk varamanna. Einn skal skipaður af mennta- og barnamálaráðherra án tilnefningar og skal vera formaður nefndarinnar og tveir skulu skipaðir samkvæmt tilnefningu Kennarasambands Íslands. Varamenn eru skipaðir með sama hætti. Skipunartímabil nefndarinnar er fjögur ár.
Námsorlofsnefnd 2023-2027 skipa:
Þóra Þórðardóttir, formaður, skipuð af mennta- og barnamálaráðuneyti.
Guðmundur Björgvin Gylfason, tilnefndur af Kennarasambandi Íslands.
Sigrún Lilja Guðbjörnsdóttir, tilnefnd af Kennarasambandi Íslands.
Að loknu hverju námsorlofsári tekur námsorlofsnefnd saman skýrslu um veitingu námsorlofa. Í skýrslunni skulu m.a. koma fram upplýsingar um fjárveitingar til námsorlofa og styrkja, auk fjölda umsækjenda.
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands