Fara beint í efnið

Með hvíldar- eða endurhæfingarinnlögn er átt við tímabundna dvöl í hjúkrunarrými. Dvölin getur varað frá nokkrum dögum upp í átta vikur. Markmiðið með hvíldarinnlögn er að gera fólki kleift að búa áfram á eigin heimili.

Hvíldar- eða endurhæfingarinnlögn í hjúkrunarrými

  • Aldraðir sem búa á eigin heimili eiga möguleika á hvíldar-/endurhæfingarinnlögn á hjúkrunarheimilum.

  • Sótt er um hjá færni- og heilsumatsnefnd í því heilbrigðisumdæmi þar sem hinn aldraði lögheimili. Umsóknina skal afgreiða innan 7 daga.

  • Reglugerð um færni- og heilsumat vegna dvalar- og hjúkrunarrýma

  • Hvíldar-/endurhæfingarinnlögn má veita þegar sá sem stutt hefur hinn aldraða þarfnast hvíldar, forfallast skyndilega eða þarf tímabundna umönnun og endurhæfingu.

  • Í undantekningartilvikum getur starfsfólk heilbrigðisþjónustu metið bráðahvíldarinnlögn nauðsynlega.

Vert að skoða

Lög og reglugerðir

Þjónustuaðili

Embætti land­læknis