Fara beint í efnið

Umsókn um færni- og heilsumat - eyðublað

Umsókn þarf að berast færni- og heilsumatsnefndum á sérstöku eyðublaði.

Um færni- og heilsumat

Færni- og heilsumat er faglegt og einstaklingsbundið mat á þörfum einstaklinga fyrir varanlega búsetu á hjúkrunar- og dvalarheimilum.

Um er að ræða staðlað mat ásamt skilgreindum upplýsingum frá heilbrigðis- og félagsþjónustu, auk læknabréfa frá læknum viðkomandi eftir því sem við á. 

Við matið er eftirfarandi metið:

  • félagslegar aðstæður

  • heilsufar

  • andlegt ástand

  • færni í athöfnum daglegs lífs

Niðurstaða matsins gefur til kynna hvort þörf sé fyrir langtíma búsetu á hjúkrunar- eða dvalarheimili.

Hvenær skal sækja um færni- og heilsumat? 

Stefna heilbrigðisyfirvalda er að fólki sé gert kleift að búa á eigin heimili utan stofnana eins lengi og unnt er, með viðeigandi heilbrigðis- og félagsþjónustu. 

Þegar aðstæður eru orðnar þannig að fólk getur ekki lengur búið heima þrátt fyrir stuðning heilbrigðis- og félagsþjónustu er tímabært að sækja um færni- og heilsumat.

Viðkomandi þarf þá að vera tilbúinn að þiggja hjúkrunar- eða dvalarrými þegar það býðst. 

Gildistími mats

Gildistími samþykkts færni- og heilsumats eru tólf mánuðir frá staðfestingu þess.

Hafi einstaklingi ekki boðist að flytja á hjúkrunar- eða dvalarheimili innan þess tíma þarf að endurnýja matið.

Lífeyrisgreiðslur

Athygli umsækjenda er vakin á því að þegar lífeyrisþegi flyst á hjúkrunar- eða dvalarheimili falla niður lífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun (TR).

Frekari upplýsingar um þessi efni er að finna á vef Tryggingastofnunar 

Þjónustuaðili

Embætti land­læknis