Færni- og heilsumat
Aðgengi að færni- og heilsumatsskrá
Fyrir fagfólk:
Markmið aðgangsstjórnunar í upplýsingakerfi færni- og heilsumats er að tryggja að starfsfólk í matsnefndum og á viðkomandi stofnunum fái þann aðgang að gögnum kerfisins sem það þarf vegna starfa sinna.
Lesaðgangur
Lesaðgangur er ætlaður færni- og heilsumatsnefndum og öðrum skilgreindum aðilum sem vinna með færni- og heilsumatið en skrá ekki í það.
Skrifaðgangur
Skrifaðgangur er fyrir þá sem skrá beiðnir, færni- og heilsumat, umsóknir og vistun fyrir færni- og heilsumatsnefndir og stofnanir.
Þjónustuaðili
Embætti landlæknis