Dvalarleyfi fyrir hugsanlegt fórnarlamb mansals
Leyfi til að vinna á Íslandi
Erlendir ríkisborgarar, sem ekki eru undanþegnir kröfunni um atvinnuleyfi, þurfa að hafa atvinnuleyfi til að mega vinna á Íslandi.
Ef þú hefur fengið veitt dvalarleyfi á grundvelli þess að vera hugsanlegt fórnarlamb mansals geturðu sótt um tímabundið atvinnuleyfi vegna sérstakra ástæðna.
Ekki er hægt að veita tímabundið atvinnuleyfi vegna sérstakra ástæðna fyrr en eftir að dvalarleyfi fyrir hugsanlegt fórnarlamb mansals hefur verið veitt.
Gildistími leyfisins getur ekki verið lengri en gildistími ráðningarsamnings eða dvalarleyfis.
Upplýsingar um gögn sem þurfa að fylgja með umsókn um tímabundið atvinnuleyfi vegna sérstakra aðstæðna er að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar.
Ef þú ert nú þegar með dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli atvinnu og grunar að þú sért þolandi vinnumansals eru tveir möguleikar í stöðunni.
Ef þú finnur nýtt starf hjá nýjum vinnuveitanda, gætir þú sótt um nýtt atvinnuleyfi, á grundvelli sama dvalarleyfis og þú ert með.
Ef núverandi dvalar- og atvinnuleyfi þitt er að renna út og þú vilt geta verið áfram á Íslandi, er skynsamlegt að sækja um dvalarleyfi fyrir hugsanlegt fórnarlamb mansals áður en núverandi leyfi rennur út. Á meðan umsókn um slíkt leyfi er til vinnslu er umsækjanda ekki vísað frá landinu.
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun