Dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar
Afturköllun verndar
Útlendingastofnun getur afturkallað veitingu alþjóðlegrar verndar og viðbótarverndar, ef flóttamaður eða ríkisfangslaus einstaklingur:
hefur sjálfviljugur notfært sér vernd heimalands síns á ný,
hefur sjálfviljugur endurheimt ríkisfang sitt sem hann hafði glatað,
hefur öðlast nýtt ríkisfang og nýtur verndar hins nýja heimalands,
hefur sjálfviljugur sest að á ný í því landi sem hann yfirgaf eða dvaldist ekki í vegna ótta við ofsóknir,
getur ekki lengur neitað að hagnýta sér vernd heimalands síns vegna þess að aðstæðurnar sem höfðu í för með sér að hann var viðurkenndur flóttamaður eru ekki lengur fyrir hendi,
getur horfið aftur til landsins sem hann hafði áður reglulegt aðsetur í vegna þess að aðstæðurnar sem leiddu til þess að hann var viðurkenndur flóttamaður eru ekki lengur fyrir hendi, ef um ríkisfangslausan einstakling er að ræða.
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun