Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Styrkir Bókasafnasjóðs skulu veittir til skilgreindra verkefna sem stuðla að bættu faglegu starfi bókasafna, s.s. rannsókna- og þróunarverkefna, auk innlendra og erlendra samstarfsverkefna á sviði bókasafna- og upplýsingamála.

Leiðbeiningar vegna umsókna

Umsóknum skal skila á rafrænu formi í gegnum umsóknarkerfi Rannís. Ekki er tekið við umsóknum á öðru formi.

Innskráning í umsóknarkerfileiðbeiningar umsóknarkerfis

Hlutverk Bókasafnasjóðs er að efla starfsemi og faglegt starf bókasafna. Sjóðurinn veitir ekki styrki til almenns rekstrar bókasafna.
Bókasafnasjóður veitir styrki til skilgreindra verkefna sem stuðla að bættu faglegu starfi bókasafna, s.s. rannsókna- og þróunarverkefna, auk innlendra og erlendra samstarfsverkefna á sviði bókasafna- og upplýsingamála.

Upphæðir og og fjöldi styrkja ráðast af ráðstöfunarfé sjóðsins, fjölda umsókna og gæðum þeirra.

Auglýst er eftir umsóknum einu sinni á ári. Umsóknarfrestur er í mars ár hvert.

Sækja skal um rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís.

Rannís hefur umsjón með Bókasafnasjóði fyrir hönd menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis. Sjóðurinn starfar á grundvelli bókasafnalaga og reglum bókasafnasjóðs. 

Tekið er á móti fyrirspurnum í netfanginu bokasafnasjodur@rannis.is eða í síma 515 5838 og 515 5839.