Bókasafnasjóður
Stjórn
Ráðherra skipar bókasafnaráð til fjögurra ára í senn. Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtök forstöðumanna almenningsbókasafna tilnefna hvort sinn fulltrúa í ráðið, Upplýsing, félag bókasafns- og upplýsingafræða, tilnefnir tvo fulltrúa ólíkra flokka bókasafna, og einn fulltrúi er skipaður án tilnefningar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Ekki er heimilt að skipa sama mann aðalfulltrúa í bókasafnaráði lengur en tvö samfelld starfstímabil.
Ráðherra skipar formann og varaformann úr hópi stjórnarmanna. Landsbókavörður og forstöðumaður Hljóðbókasafns Íslands sitja fundi bókasafnaráðs með málfrelsi og tillögurétt.
Bókasafnaráð setur bókasafnasjóði úthlutunarreglur sem ráðherra staðfestir.
Nefndarmenn:
Linda Hrönn Þórisdóttir formaður, skipuð án tilnefningar
Njörður Sigurðsson varaformaður skipaður samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga
Hólmkell Hreinsson skipaður samkvæmt tilnefningu Samtaka forstöðumanna almenningsbókasafna
Helgi Sigurbjörnsson skipaður samkvæmt tilnefningu Upplýsingar, félags bókasafns- og upplýsingafræða
Siggerður Ólöf Sigurðardóttir skipuð samkvæmt tilnefningu Upplýsingar, félags bókasafns- og upplýsingafræða
Varamenn:
Hildur Jörundsdóttir skipuð án tilnefningar
Fríða Stefánsdóttir skipuð samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga
Pálína Magnúsdóttir skipuð samkvæmt tilnefningu Samtaka forstöðumanna almenningsbókasafna
Margrét Sigurgeirsdóttir skipuð samkvæmt tilnefningu Upplýsingar, félags bókasafns- og upplýsingafræða
Guðmann Kristþórsson skipaður samkvæmt tilnefningu Upplýsingar, félags bókasafns- og upplýsingafræða.
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands