Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Bókasafnasjóður

Greiðslur og skýrsluskil

Greiðslur

  • Greiðslur taka mið af upphæð styrks

  • Umsækjendur sem fá úthlutað styrk fá sendan tölvupóst þar sem fram koma þeir skilmálar sem styrkveitingunni fylgja. Með því að svara, telst umsækjandi hafa samþykkt skilmálana og styrkurinn verður lagður inn á reikning viðkomandi umsækjanda.

  • Styrkir allt að 1,5 milljón eru greiddir út í einu lagi en hærri styrkir greiðast hlutfallslega þ.e. 80% í upphafi og 20% lokagreiðsla eftir að styrkþegi hefur skilað lokaskýrslu samkvæmt skilmálum styrks.

Skýrslur

  • Sjá upplýsingar í undirrituðum skilmálum styrks.

  • Að verkefni loknu skila styrkþegar lokaskýrslu um árangur og niðurstöður til bókasafnaráðs innan 3 mánaða frá lokum verkefnis. 

  • Sá notandi sem sendi umsókn getur nálgast skýrsluform verkefnis á „sínum síðum“ Rannís. 

  • Ef framlengja þarf verkefni, fresta skilum á lokaskýrslu eða flytja skýrsluform á annan notanda, skal senda beiðni á netfang sjóðsins, bokasafnasjodur@rannis.is

  • Ef styrkþegi sækir um fyrir nýtt verkefni áður en yfirstandandi verkefni er lokið þarf að skila áfangaskýrslu fyrir yfirstandandi verkefni til að ný umsókn sé tekin til greina.

  • Lýsing á framkvæmd verkefnis til opinberrar birtingar í lokaskýrslu birtist með færslu verkefnis á gagnatorgi Rannís.