Bókasafnasjóður
Mat og úthlutun
Allar umsóknir sem berast sjóðnum eru metnar af Bókasafnaráði sem leggur mat á umsóknir með hliðsjón af hlutverki sjóðsins samkvæmt bókasafnalögum (20. gr) og auglýstum áherslum ef einhverjar. Við mat á umsóknum er tekið mið af reglum um Bókasafnasjóðs.
Mat á umsóknum skal einkum byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum:
Verkefnið falli vel að markmiðum Bóksafnasjóðs
Efni sem liggur til grundvallar umsókn er vel skilgreint og hefur mikið gildi.
Vinnulýsing er vel skilgreind, sannfærandi og líklegt að markmið náist.
Fjárhagsáætlun er vel unnin og trúverðug.
Verkefnisstjórn / bókasafn er líklegt til að ná settu markmiði.
Hafi umsækjandi þegið styrk úr Bókasafnasjóði áður þarf að liggja fyrir loka- eða áfangaskýrsla um framkvæmd fyrra verkefnis til að ný umsókn komi til greina.
Við úthlutun styrkja skal gæta jafnræðis, hlutlægni, gagnsæis og samkeppnissjónarmiða.
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands