Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Staða

Opið fyrir umsóknir

Frestur til 16. mars, kl. 15:00

Umsóknartímabil

12.01.2026 - 16.03.2026

Styrkjaflokkun

Innlent, Menning og listir

Tegund

Fjármögnun

Þjónustuaðili

Rannsóknamið­stöð Íslands

Verkefnastyrkur Bókasafnasjóðs

Bókasafnasjóður styrkir skilgreind verkefni sem stuðla að bættu faglegu starfi bókasafna, auk samstarfsverkefna á sviði bókasafna- og upplýsingamála.

Staða

Opið fyrir umsóknir

Frestur til 16. mars, kl. 15:00

Umsóknartímabil

12.01.2026 - 16.03.2026

Styrkjaflokkun

Innlent, Menning og listir

Tegund

Fjármögnun

Verkefnastyrkur Bókasafnasjóðs

Opið fyrir umsóknir / Frestur til 16. mars, kl. 15:00

Bókasafnasjóður veitir styrki til skilgreindra verkefna sem stuðla að bættu faglegu starfi bókasafna, s.s. rannsókna- og þróunarverkefna, auk innlendra og erlendra samstarfsverkefna á sviði bókasafna- og upplýsingamála.

Hverjir geta sótt um?

Öll bókasöfn sem falla undir bókasafnalög og reglur um bókasafnasjóð. Bókasöfn geta sótt um ein eða með öðrum bókasöfnum eða með öðrum aðilum sem hafa það að markmiði að efla bókasöfn í landinu.

Hvernig er sótt um?

Sækja skal um rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís - Mínar síður Rannís

Til að nálgast umsóknarformið þarf umsækjandi að tengjast umsóknarkerfi Rannís með rafrænum skilríkjum.
Leiðbeiningar um innskráningu og hvernig ný umsókn er stofnuð (ef opið er fyrir umsóknir).  

Mikilvægt er að hafa í huga að við gerð kostnaðaráætlunar að í eyðublaði er átt við heildarkostnað verkefnisins. Ef sótt er um styrk eða framlög til annarra skal tilgreina það í umsókn.  Mikilvægt er að fara vel yfir kostnaðaryfirlit áður en umsókn er send inn. Lágmarksstyrkur til verkefna er 250 þúsund krónur.

Svör við spurningum

Tekið er á móti fyrirspurnum í netfanginu bokasafnasjodur@rannis.is eða í síma 515 5838 og 515 5839.

Þjónustuaðili

Rannsóknamið­stöð Íslands