Barnabætur
Fjárhæðir barnabóta
Fjárhæðir 2026
Barnabætur | Einstætt foreldri | Hjón og sambýlisfólk |
|---|---|---|
Barnabætur með hverju barni | 514.500 kr. | 345.000 kr. |
Viðbót með hverju barni yngra en 7 ára | 130.000 kr. | 130.000 kr. |
Barnabætur skiptast jafnt á milli hjóna/sambúðarfólks og taflan sýnir heildarupphæð.
Barnabætur sem eru lægri en 5.000 krónur á mann falla niður.
Skerðing vegna tekna
Skerðingar | Einstætt foreldri | Hjón og sambýlisfólk |
|---|---|---|
Skerðingarmörk vegna tekna umfram | 5.844.000 kr. á ári | 11.688.000 kr. á ári |
Skerðingarhlutfall, óháð fjölda barna | 4% | 4% |
Skerðingarhlutfall v. barna yngri en 7 ára | 4% fyrir hvert barn * | 4% fyrir hvert barn * |
* Skerðing á viðbót vegna barna yngri en 7 ára er reiknuð fyrir hvert barn (8% fyrir tvö, 12% fyrir þrjú og svo framvegis).
Tekjustofn til útreiknings barnabóta er frábrugðinn tekjuskattsstofni að því leyti að fjármagnstekjur eru hér meðtaldar.
Laun frá alþjóðastofnunum sem ekki eru skattlögð koma inn í tekjustofn til útreiknings á barnabótum.
Sérstök útgreiðsla séreignarsparnaðar kemur hins vegar ekki inn í útreikning barnabóta.
Þjónustuaðili
Skatturinn