Barnabætur
Barnabætur á fæðingarári
Foreldrar fá greiddar barnabætur á fæðingarári barnsins.
Barnabætur sem greiddar verða árið eftir fæðingu lækka um sömu upphæð (fyrstu tvær greiðslurnar).
Barnabætur á fæðingarári:
eru greiddar út sjálfkrafa til foreldra og ekki þarf að sækja um þær
dragast frá barnabótum ársins eftir fæðingu
fara eftir sömu reglum um tekjuskerðingu og almennar barnabætur
eru jafn háar hjá hjónum, fólki í sambúð og hjá einstæðum foreldrum
skiptast jafnt á milli hjóna og fólks í sambúð, hjúskaparstaða miðast við skráningu í þjóðskrá þann ársfjórðunginn
er ekki hægt að afþakka, jafnvel þótt fyrirséð sé að greiða þurfi þær til baka síðar
hafa verið greiddar frá árinu 2025
Foreldrar barna sem flytja til landsins fá einnig greiddar barnabætur sjálfkrafa á flutningsári eftir sömu reglum.
Flytji barn úr landi á árinu fellur greiðslan niður þann ársfjórðung.
Greiðslur á fæðingarári
Barnabætur á fæðingarári eru greiddar allt að þrisvar sinnum yfir árið. Foreldrar barna sem fæðast snemma á árinu fá þannig fleiri greiðslur.
Greitt er:
1. maí fyrir börn fædd í janúar, febrúar og mars
1. ágúst fyrir börn fædd í júní og fyrr
1. nóvember fyrir börn fædd í september og fyrr
Sem dæmi fá foreldrar barns sem fæðist í febrúar alls þrjár greiðslur á árinu.
Foreldrar barna sem fædd eru eftir september fá fyrstu greiðslu barnabóta 1. febrúar á næsta ári.
Greiðslur á fæðingarári eru dregnar af fyrirframgreiddum barnabótum sem greiddar verða 1. febrúar og 1. maí árið eftir.
Heildarupphæð greiddra barnabóta á fæðingarári og fyrsta ári eftir fæðingu er óháð því hvenær á árinu barnið fæðist. Margar greiðslur á fæðingarári lækka greiðslur næsta árs til samræmis.
Ef greiddar barnabætur á fæðingarári reynast hærri en fyrirframgreiðsla barnabóta næsta árs myndast skuld sem þarf að greiða til baka við álagningu.
Útreikningur greiðslna
Greiðslur barnabóta á fæðingarári eru reiknaðar á sama grunni hjá öllum foreldrum:
Miðað er við helming af grunnupphæð barnabóta til hjóna og samskattaðra.
Dregnar eru frá skerðingar vegna tekna. Þær ráðast af hjúskaparstöðu með sama hætti og fyrir barnabætur almennt.
12% af því sem eftir stendur er greitt í hverri greiðslu á fæðingarári.
Dæmi um greiðslur á fæðingarári
Þjónustuaðili
Skatturinn