Barnabætur
Barnabætur leiðréttar
Fyrstu tvær greiðslur barnabóta hvers árs byggja á áætlun og teljast fyrirframgreiðsla.
Ef fyrirframgreiðsla barnabóta byggir á röngum forsendum getur komið í ljós að hún hafi verið of há þegar endanlegur útreikningur liggur fyrir. Ef það gerist lækka seinni greiðslur ársins og mögulega myndast skuld sem þarf að greiða til baka.
Hægt er að óska eftir leiðréttingu á fyrirframgreiðslu ef aðstæður eru aðrar en þær forsendur sem útreikningur byggir á.
Leiðréttingarbeiðni þarf að berast fyrir 28. febrúar.
Sjá nánar um forsendur og útreikning fyrirframgreiðslu.
Breytingar á högum
Algengar breytingar sem gætu haft áhrif á fjárhæð barnabóta eru meðal annars:
Breytingar sem orðið hafa á tekjum
Skilnaður eða samvistarslit
Ný sambúð
Óskráð sambúð
Maki er búsettur og/eða starfar erlendis
Sjálfkrafa útreikningur liggur ekki fyrir
Hópur fólks fær ekki sjálfkrafa útreikning á fyrirframgreiðslu barnabóta en getur sótt um leiðréttingu á því.
Ástæða þess getur meðal annars verið:
Skattframtali fyrra árs hefur ekki verið skilað
Námsmenn sem búa erlendis
Flutningur milli landa
Óþekkt hjúskaparstaða í Þjóðskrá
Þú getur séð forsendur fyrir þínum útreikningi barnabóta á þjónustuvef Skattsins undir flipanum „Samskipti“.
Á vef Skattsins er líka reiknivél barnabóta.
Þjónustuaðili
Skatturinn