Fara beint í efnið

Erlend þjónustufyrirtæki og útsendir starfsmenn (Posting.is)

Öryggi og vellíðan á vinnustað

Atvinnurekendur skulu stuðla að öryggi og vellíðan starfsfólks á vinnustað.

  • Þeir þurfa að sjá til þess að gerð sé skrifleg áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað án tillits til stærðar hans, en hún leggur grunn að öryggi og vellíðan starfsfólks.

  • Þeim ber einnig að sjá til þess á að vinnustaðnum ríki heilbrigð vinnustaðamenning en slík menning dregur úr líkum á óhöppum og vinnuslysum.

Sjá leiðbeiningar um gerð skriflegrar áætlunar um öryggi og heilbrigði

Samkvæmt lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum skulu atvinnurekendur tryggja að starfsfólk, óháð tungumáli, uppruna eða starfsreynslu, fái:

  • Fullnægjandi upplýsingar, leiðbeiningar og þjálfun um örugg vinnubrögð.

  • Upplýsingar um þær hættur sem kunna að fylgja starfinu.

Atvinnurekendur þurfa einnig að ganga úr skugga um að starfsfólk skilji þær reglur og öryggiskröfur sem gilda á vinnustaðnum.

Starfsfólk þarf að fara eftir þeim reglum sem gilda.

Erlendu starfsfólki hættara við slysum í mannvirkjagerð

Í mannvirkjagerð þarf að huga sérstaklega vel að öryggi starfsfólks þar sem vinnuaðstæður eru oft krefjandi og slysahætta mikil. Gögn Vinnueftirlitsins yfir tilkynnt vinnuslys sýna að starfsfólk með erlent ríkisfang lendir í nærri helmingi tilkynntra vinnuslysa í mannvirkjagerð. Það undirstrikar mikilvægi þess að öryggisreglur, verklag og leiðbeiningar séu skýrar, aðgengilegar og á tungumáli sem starfsfólk skilur.

Góð samskipti stuðla að öryggi

Tungumálaörðugleikar, menningarmunur og mismunandi reynsla af vinnuaðferðum geta aukið slysahættu. Þá geta íslenskar aðstæður, svo sem hálka, snjór og krefjandi veðurfar skapað aukna áhættu fyrir starfsfólk sem er óvant slíkum aðstæðum.

Þar sem starfsfólk talar ólík tungumál eða býr yfir mismunandi reynslu þarf að leggja sérstaka áherslu á:

  • Skýr samskipti.

  • Góða nýliðaþjálfun.

  • Heilbrigða vinnustaðamenningu.

Þá er mikilvægt að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk treysti sér til að:

  • Spyrja spurninga.

  • Koma ábendingum á framfæri.

  • Láta vita ef öryggi er ábótavant eða vanlíðan til staðar.

Sérstaklega þarf að stuðla að sálfélagslegu öryggi þannig að starfsfólk með annan menningar- eða tungumálabakgrunn upplifi sig sem virkan þátttakanda í öryggismálum vinnustaðarins. Fræðsla um fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn starfsfólks stuðlar jafnframt að öruggu og styðjandi vinnuumhverfi.

Ef starfsfólk upplifir sig öruggt í vinnunni og líður vel dregur það úr líkum á mistökum og slysum. Það ýtir jafnframt undir fagmennsku og þar með árangur og orðspor fyrirtækja.

Öryggi og vellíðan í vinnu er forsenda þess að öll komi heil heim.