Fara beint í efnið

Erlend þjónustufyrirtæki og útsendir starfsmenn (Posting.is)

Upplýsingar til Vinnueftirlitsins

Erlent þjónustufyrirtæki sem starfar á Íslandi skal samkvæmt lögum um útsenda starfsmenn og skyldur erlendra þjónustuveitenda, upplýsa Vinnueftirlitið um starfsemi sína, fyrirtækið og starfsfólkið sem kemur hingað til lands.

Fyrirtækið þarft að upplýsa um starfsemina ef:

  • Það starfar á Íslandi lengur en samtals tíu virka daga á tólf mánaða tímabili. Dagarnir þurfa ekki endilega að vera samfelldir.

  • Einn eða fleiri starfsmenn eru sendir til Íslands.

Fyrirtækið gæti verið undanþegið upplýsingaskyldu ef:

  • Þjónustan felst í sérhæfðri uppsetningu, samsetningu, eftirliti eða viðgerð tækja og verkefnið tekur ekki lengri tíma en fjórar vikur á tólf mánaða tímabili.

Upplýsingarnar þurfa að berast í síðasta lagi þann dag sem starfsemin hefst.

Upplýsingar frá erlendum þjónustufyrirtækjum