Erlend þjónustufyrirtæki og útsendir starfsmenn (Posting.is)

Viðurlög
Erlend þjónustufyrirtæki geta sætt viðurlögum ef þau sinna ekki skyldum sínum samkvæmt lögum um útsenda starfsmenn og skyldur erlendra þjónustuveitenda.
Vinnueftirlitið hefur eftirlit með því að fyrirtæki uppfylli meðal annars skyldur um skráningu, upplýsingagjöf og starfskjör starfsfólks. Ef fyrirtæki uppfyllir ekki skyldur sínar getur Vinnueftirlitið krafist úrbóta innan ákveðins frests og beitt viðurlögum.
Vinnueftirlitið getur meðal annars beitt eftirfarandi viðurlögum:
Tímabundin stöðvun vinnu eða starfsemi
Vinnueftirlitið getur krafist þess að lögregla stöðvi vinnu tímabundið eða loki starfsemi fyrirtækisins hér á landi þar til fullnægjandi úrbætur hafa verið gerðar.
Dagssektir
Vinnueftirlitið getur lagt dagssektir á fyrirtæki til að knýja fram úrbætur. Sektirnar geta numið allt að einni milljón króna fyrir hvern dag þar til tilkynning um úrbætur hefur borist.
Við ákvörðun fjárhæðar er meðal annars litið til umfangs starfseminnar og fjölda starfsfólks.
Stjórnvaldssektir
Vinnueftirlitið getur lagt stjórnvaldssektir á fyrirtæki sem:
Veitir ekki lögbundnar upplýsingar.
Veitir ekki aðgang að gögnum.
Veitir rangar eða ófullnægjandi upplýsingar.
Sektirnar geta numið allt að fimm milljónum króna. Við ákvörðun fjárhæðar er meðal annars tekið tillit til alvarleika og lengdar brotsins, hvort um ítrekað brot sé að ræða og samstarfsvilja fyrirtækis.