Erlend þjónustufyrirtæki og útsendir starfsmenn (Posting.is)

Laun í veikindum og vegna slysa
Ef starfsmaður veikist eða lendir í slysi, á meðan hann starfar hér á landi í tengslum við veitingu þjónustu, á hann rétt á launum meðan á fjarveru vegna veikindanna eða slyssins stendur.
Ávinnsla veikindaréttar
Starfsmaður safnar veikindarétti með vinnu hjá sama fyrirtæki hér á landi.
Fyrstu tólf mánuðina ávinnst rétturinn þannig að starfsmaður öðlast rétt á tveimur launuðum veikindadögum fyrir hvern unninn mánuð.
Réttindin miðast við laun samkvæmt kjarasamningi í viðkomandi starfsgrein og er miðað við starfshlutfall starfsmannsins, það er hvort starfsmaðurinn er í fullu starfi eða hlutastarfi.
Veikindaréttur er heildarréttur og miðast við heildarfjölda veikindadaga á hverju tólf mánaða tímabili, án tillits til tegundar sjúkdóms.
Eftir eitt ár í starfi
Þegar starfsmaður hefur unnið hér á landi lengur en eitt ár fer ávinnslan samkvæmt 5. gr. laga um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá störfum og til launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla.
Virða skal rétt starfsfólks til uppsagnafrests og launa ef veikindi eða slys ber að höndum.
Vinnuslys og atvinnusjúkdómar
Ef starfsmaður forfallast frá vinnu, vegna afleiðinga slyss sem verður við vinnu eða á beinni leið til eða frá vinnu, á hann rétt á kjarasamningsbundnum launum í allt að þrjá mánuði í samræmi við starfshlutfall sitt. Þessi réttur kemur til viðbótar veikindarétti hans.
Sama gildir ef starfsmaður veikist af atvinnusjúkdómi.
Laun miðast sem fyrr við kjarasamning í viðkomandi starfgrein og starfshlutfall starfsmannsins.
Kjarasamningsbundin laun
Með kjarasamningsbundnum launum er átt við þau laun sem kjarasamningur í viðkomandi starfsgrein segir til um á því svæði er samningurinn tekur til.
Greiðslur frá heimaríki
Ef starfsmaður fær greidd laun í veikinda- og slysatilvikum samkvæmt ráðningarsamningi, kjarasamningi eða lögum í heimaríki skal hann fá greiddan mismun launa ef réttur samkvæmt íslenskum reglum er hagstæðari.
Læknisvottorð
Fyrirtækið getur óskað eftir læknisvottorði sem staðfestir að starfsmaður sé óvinnufær vegna veikinda eða slyss.
Fyrirtækið þarf að greiða:
Kostnað við vottorðið.
Kostnað vegna öflunar þess.
Þetta á við ef starfsmaður tilkynnti veikindin á fyrsta degi.
Betri réttur gildir
Ef starfsmaður á betri rétt samkvæmt ráðningarsamningi við hlutaðeigandi fyrirtæki, samkvæmt kjarasamningi eða í lögum í heimaríki sínu, gildir sá réttur.