Fara beint í efnið

Erlend þjónustufyrirtæki og útsendir starfsmenn (Posting.is)

Erlendum þjónustufyrirtækjum, með staðfestu innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES), EFTA-ríkis eða Færeyja, er heimilt að senda starfsfólk (útsenda starfsmenn) tímabundið til Íslands til að veita þjónustu.

Á þessari síðu er að finna upplýsingar um hvaða gögnum erlend þjónustufyrirtæki þurfa að skila til Vinnueftirlitsins og hvaða skyldur þau hafa gagnvart starfsfólki sínu. Samskonar reglur gilda um erlenda sjálfstætt starfandi einstaklinga sem koma hingað til lands til að veita þjónustu.

Á síðunni er einnig fjallað um réttindi og skyldur útsendra starfsmanna og ábyrgð notendafyrirtækja.

Hvaða upplýsingar þarf að senda til Vinnueftirlitsins?

Erlent þjónustufyrirtæki sem starfar á Íslandi skal upplýsa Vinnueftirlitið um starfsemi sína, fyrirtækið og starfsfólkið sem kemur hingað til lands.

Efni ráðningarsamnings

Erlent þjónustufyrirtæki þarf að senda Vinnueftirlitinu afrit af ráðningarsamningum starfsfólks sem kemur til starfa á Íslandi.

Hvað þarf ég að vita sem útsendur starfsmaður?

Hér finnur þú upplýsingar um réttindi þín og svör við algengum spurningum útsendra starfsmanna.