Erlend þjónustufyrirtæki og útsendir starfsmenn (Posting.is)

Erlend þjónustufyrirtæki
Erlent þjónustufyrirtæki er fyrirtæki sem stundar atvinnurekstur með staðfestu í öðru EES- ríki, EFTA-ríki eða Færeyum og sendir starfsfólk tímabundið til Íslands til að veita þjónustu.
Erlend þjónustufyrirtæki þurfa að fylgja íslenskum lögum og reglum á meðan þau starfa á Íslandi og tryggja að réttindi starfsfólks sem starfar á þeirra vegum séu í samræmi við íslensk lög.
Hér er að finna upplýsingar um hvaða gögn fyrirtækin þurfa að senda til Vinnueftirlitsins og hvaða skyldur þau hafa gagnvart starfsfólki sínu.