Erlend þjónustufyrirtæki og útsendir starfsmenn (Posting.is)

Vinnuvélaréttindi
Atvinnurekandi þarf að tryggja að starfsfólk sem stjórnar réttindaskyldum vinnuvélum á Íslandi hafi til þess fullgild réttindi.
Starfsfólk getur annað hvort aflað sér vinnuvélaréttinda á Íslandi eða sótt um að fá erlend réttindi metin. Atvinnurekendur geta sótt um mat á erlendum réttindum fyrir starfsfólk.
Þeir einir mega stjórna vinnuvélum á Íslandi sem hafa öðlast fullgild réttindi.
Námskeið og próf
Til að fá vinnuvélaréttindi þarf að:
Hafa náð 17 ára aldri.
Hafa gilt ökuskírteini til að aka bifreið.
Hafa lokið tilskyldu námi og þjálfun.
Standast verklegt próf á vegum Vinnueftirlitsins.
Sérstök réttindi þarf til að stjórna ákveðnum tegundum vinnuvéla. Skoðaðu hvaða réttindaflokk þarf áður en starfsmaður hefur störf.
Nánar um vinnuvélaréttindi, réttindaflokka og nám.
Fá erlend vinnuvélaréttindi metin á Íslandi
Starfsmaður með vinnuvélaréttindi frá öðru EES-ríki þarf að sækja um að réttindin verði viðurkennd á Íslandi. Erlend vinnuvélaréttindi teljast ekki gild hér á landi án slíkrar viðurkenningar og þarf annars að afla íslenskra vinnuvélaréttinda.
Vinnuveitandi getur sótt um mat á erlendum réttindum fyrir hönd starfsmannsins.
Þetta er í samræmi við lög um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi.
Nánar um mat á erlendum vinnuvélaréttindum og umsóknarferlið.