Fara beint í efnið

Erlend þjónustufyrirtæki og útsendir starfsmenn (Posting.is)

Efni ráðningarsamnings

Erlent þjónustufyrirtæki þarf að senda Vinnueftirlitinu afrit af ráðningarsamningum starfsfólks sem kemur til starfa á Íslandi. Vinnueftirlitið fer yfir samningana til að kanna hvort laun og önnur starfskjör séu í samræmi við íslensk lög og kjarasamninga.

Afrit af ráðningarsamningum alls starfsfólks sem sent er til Íslands þurfa að berast eigi síðar en sama dag og starfsemi hefst. Þau ber að senda samhliða öðrum upplýsingum.

Réttindi útsendra starfsmanna

Útsendir starfsmenn eiga meðal annars rétt á:

  • Launum og öðrum kjörum samkvæmt íslenskum kjarasamningum.

  • Yfirvinnugreiðslum samkvæmt íslenskum kjarasamningum.

  • Orlofi og orlofslaunum samkvæmt íslenskum lögum.

  • Að reglum um hámarksvinnutíma og lágmarkshvíld sé fylgt.

Upplýsingar sem þurfa að koma fram í ráðningarsamningi

Ráðningarsamningurinn þarf að innihalda:

  • Upplýsingar um atvinnurekanda og starfsmann.

  • Starfsheiti og upplýsingar um menntun.

  • Staðsetningu verkefnisins.

  • Dvalarstað á Íslandi.

  • Vinnutíma.

  • Dagvinnukaup, yfirvinnukaup og vaktaálag, ef við á.

  • Gjaldmiðilinn sem launin eru greidd í.

  • Dagpeninga og hvort starfsmaður beri kostnað af húsnæði og fæði á Íslandi.

  • Orlof og orlofslaun.

  • Hvort starfsmaður njóti almannatryggingaverndar í heimaríki.

  • Hvort starfsmaðurinn sé sjúkra- og slysatryggður í heimaríki.

Viðauki við ráðningarsamning

Ef gera þarf viðauka við ráðningarsamning vegna starfsins á Íslandi má nota fyrirmynd Vinnueftirlitsins.

Fyrirmynd af ráðningarsamningi

Greiðslur sem teljast ekki til launa

Athugið að greiðslur sem tengjast starfinu sérstaklega skulu teljast með við útreikning lágmarkslauna starfsmanns. Fyrirtæki má þó ekki telja með greiðslur sem ætlaðar eru til að greiða kostnað vegna ferða, gistingar og uppihalds starfsmanns.

Áður en starfsmaður kemur til Íslands

Áður en starfsmaður, sem er ríkisborgari ríkis utan EES, er sendur til Íslands til starfa þarf að kanna reglur um rétt útlendinga til dvalar og atvinnu hér á landi.

Ríkisborgararar utan EES

Þegar starfsmaður erlends þjónustufyrirtækis er ríkisborgari utan EES eða EFTA þarf að afhenda Vinnueftirlitinu staðfestingu á að hann hafi gilt atvinnuleyfi í heimaríki.

Starfsmanni erlends þjónustufyrirtækis, sem er ríkisborgari utan EES eða EFTA ríkis og er sendur hingað til lands á vegum þess, er heimilt að dvelja og starfa hér á landi í allt að 90 daga á hverju almanaksári.

Mikilvægt er að allar framangreindar upplýsingar um fyrirhugaða dvöl og störf starfsmannsins hér á landi liggi fyrir áður en viðkomandi kemur til Íslands svo hægt sé að afla staðfestingar hjá viðeigandi stjórnvöldum í heimaríki erlenda þjónustufyrirtækisins um gildi atvinnuleyfisins.

Þegar öll skilyrði eru uppfyllt að mati Vinnueftirlitsins gefur stofnunin út staðfestingu þess efnis sem hægt er að framvísa við komu til landsins, sé þess óskað af þar til bærum stjórnvöldum.