Fara beint í efnið

Erlend þjónustufyrirtæki og útsendir starfsmenn (Posting.is)

Skattar og gjöld

Erlendum þjónustufyrirtækjum og útsendum starfsmönnum ber skylda til að framfylgja íslenskri skattalöggjöf þann tíma sem starf þeirra fer fram hér á á landi.

Hér getur þú nálgast helstu upplýsingar sem málið varða og fundið tengla yfir á vefsíðu Skattsins.

Meginreglan er sú að tekjur erlendra þjónustufyrirtækja vegna þjónustu sem veitt er hér á landi eru skattskyldar. Í ákveðnum tilvikum er hægt að sækja um undanþágu frá greiðslu skatta á grundvelli tvísköttunarsamninga.

Skattskylda erlendra þjónustufyrirtækja

Erlend þjónustufyrirtæki sem veita þjónustu hérlendis eru skattskyld á Íslandi, en geta sótt um undanþágu á grundvelli tvísköttunarsamnings. Þó er ekki hægt að sækja um undanþágu hafi fyrirtækið fasta starfsstöð hér á landi. Undanþágan nær ekki til virðisaukaskatts.

Sé erlent þjónustufyrirtæki undanþegið skattskyldu á Íslandi, samkvæmt framansögðu, er það starfsfólk sem starfar hérlendis á þeirra vegum einnig undanþegið. Undanþágan nær þó ekki til starfsfólks sem dvelur hérlendis lengur en 183 daga á hverju 12 mánaða tímabili.

Ef erlent þjónustufyrirtæki, sem hefur verið undanþegið greiðslu skatta á grundvelli tvísköttunarsamninga, telst reka fasta starfsstöð hérlendis skal það greiða tekjuskatt af ágóða slíkrar starfsstöðvar.

Starfsfólk erlendra þjónustufyrirtækja sem rekur hér á landi fasta starfsstöð er skattskylt á Íslandi óháð dvalartíma. Almennar reglur gilda.

Virðisaukaskattur (VSK)

Meginreglan er sú að innlend sem erlend fyrirtæki og einstaklingar í sjálfstæðum atvinnurekstri sem selja skattskylda vöru eða þjónustu ber skylda til að skrá sig á VSK-skrá.

Hér er hægt að lesa nánar um virðisaukaskatt á heimasíðu Skattsins.

Skattskylda útsendra starfsmanna

Útsendir starfsmenn erlendra þjónustufyrirtækja eru skattskyldir á Íslandi vegna þeirra tekna sem þeir afla í vinnu hér á landi.

Ef erlenda þjónustufyrirtækið er undanþegið frá greiðslu skatta á grundvelli tvísköttunarsamnings eru starfsmenn fyrirtækisins með sama hætti undanþegnir ef dvöl þeirra hérlendis er ekki lengri en 183 dagar á hverju 12 mánaða tímabili. Þar með talin er eðlileg fjarvera héðan af landi vegna orlofs og þess háttar.

Starfsfólk sem dvelur lengur en 183 daga á hverju 12 mánaða tímabili ber ótakmarkaða skattskyldu hérlendis frá fyrsta degi og ber að greiða tekjuskatt af heildartekjum frá komu til landsins.

Ef erlent þjónustufyrirtæki rekur fasta starfsstöð hér á landi, eru starfsmenn fyrirtækisins skattskyldir óháð dvalartíma. Skattskylda getur verið takmörkuð eða ótakmörkum eftir aðstæðum.

Persónuafsláttur kemur til lækkunar opinberra gjalda. Þeir sem starfa tímabundið á Íslandi vegna vinnu eiga rétt á persónuafslætti í samræmi við dvalartíma.

Hér er hægt að lesa nánar um skattlagningu á vefsíðu Skattsins.