Erlend þjónustufyrirtæki og útsendir starfsmenn (Posting.is)

Jafnrétti á vinnustað
Vinnueftirlitið hvetur vinnustaði til að stuðla að heilbrigðri vinnustaðamenningu. Með heilbrigðri vinnustaðamenningu er átt við þau gildi, venjur og viðhorf sem ríkja í vinnuumhverfinu og starfsfólk tileinkar sér í samskiptum, samvinnu og við lausn mála.
Í þessu felst meðal annars að skapa inngildandi menningu sem byggir á virðingu og vinsemd þar sem öll eru velkomin. Þegar starfsfólk upplifir að það tilheyri hópnum og að vinnuframlag þess sé metið líður því vel og traust myndast í samskiptum.
Atvinnurekandi þarf að gefa skýr skilaboð um að einelti, áreitni og hvers kyns ofbeldi verði ekki liðið innan vinnustaðarins, hvorki af hálfu stjórnenda né starfsfólks. Hann þarf einnig að bregðast skjótt við komi upp slík hegðun á vinnustaðnum og tryggja að öll mál fái málefnalega meðferð.
Jöfn meðferð á vinnumarkaði
Allt starfsfólk á rétt á því að komið sé fram við það af virðingu.
Hvers kyns mismunun, fordómar eða áreitni vegna eftirfarandi er óheimil, í hvaða formi sem hún birtist:
kyns,
kynþáttar,
þjóðernisuppruna,
trúar,
lífsskoðunar,
fötlunar,
skertrar starfsgetu,
aldurs,
kynhneigðar,
kynvitundar,
kyneinkenna,
kyntjáningar.
Ef þú ert í vafa bendum við þér á að kynna þér málin hjá Jafnréttisstofu sem og efni laganna um jafna meðferð á vinnumarkaði sem vinnustöðum ber að fara eftir.
Jafnrétti kynjanna
Atvinnurekandi ber ábyrgð á að tryggja jafnrétti þeirra kynja sem starfa á vinnustaðnum og að öll hafi jöfn tækifæri til að njóta eigin atorku og þroska hæfileika sína. Þá er bæði bein og óbein mismunun óheimil.
Í því felst einnig að allt starfsfólk vinnustaðarins njóti jafnra launa og sömu kjara fyrir sömu og jafnverðmæt störf þannig að enginn ómálefnalegur launamunur sé til staðar.
Enn fremur þarf atvinnurekandi að tryggja að öll njóti sömu möguleika til starfsþjálfunar og símenntunar innan vinnustaðarins og verði gert kleift að samræma vinnu og einkalíf óháð kyni.
Hægt er að kynna sér málin nánar hjá Jafnréttisstofu sem og efni laganna um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna sem vinnustaðir þurfa að fara eftir.