Erlend þjónustufyrirtæki og útsendir starfsmenn (Posting.is)

Fæðingarorlof starfsfólks
Lög um fæðingar- og foreldraorlof gilda um störf útsendra starfsmanna sem starfa á Íslandi að því er varðar öryggi og heilbrigði á vinnustöðum á meðgöngu, skömmu eftir fæðingu eða vegna brjóstagjafar, sbr. 16. gr. laganna. Eins gilda þau um réttinn til starfs, sbr. 49. gr. laganna og vernd gegn uppsögnum, sbr. 50. gr. laganna.
Öryggisráðstafanir
Þegar öryggi og vellíðan starfsmanns sem er barnshafandi, hefur nýlega fætt barn eða er með barn á brjósti er í hættu, samkvæmt sérstöku mati, þarf vinnuveitandi að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja öryggi starfsmannsins með því að breyta tímabundið vinnuskilyrðum og/eða vinnutíma hans.
Verði því ekki komið við af tæknilegum eða öðrum ástæðum skal vinnuveitandi fela starfsmanni önnur verkefni en að öðrum kosti veita honum leyfi frá störfum þann tíma sem nauðsynlegt er til að vernda öryggi hans og heilbrigði.
Réttur til starfs
Ráðningarsamband útsends starfsmanns og erlends þjónustufyrirtækis skal haldast óbreytt í fæðingar- og foreldraorlofi á meðan starfsmaðurinn starfar á Íslandi og á hann rétt á að hverfa aftur til starfs síns að loknu orlofi. Sé þess ekki kostur skal viðkomandi eiga rétt á sambærulegu starfi hjá vinnuveitanda í samræmi við ráðningarsamning.
Vernd gegn uppsögnum
Óheimilt er að segja útsendum starfsmanni upp störfum á grundvelli þess að hann hafi tilkynnt um fyrirhugaða töku fæðingar- og foreldraorlofs eða er í fæðingar- eða foreldraorlofi nema að gildar ástæður séu fyrir hendi og skal þá skriflegur rökstuðningur fylgja uppsögninni. Sama gildir um barnshafandi starfsmann og starfsmann sem hefur nýlega fætt barn.