Fara beint í efnið

Erlend þjónustufyrirtæki og útsendir starfsmenn (Posting.is)

Útsendir starfsmenn

Útsendur starfsmaður er starfsmaður sem starfar að jafnaði utan Íslands en er sendur tímabundið á vegum erlends þjónustufyrirtækis hingað til lands í tengslum við veitingu þjónustu.

Sem útsendur starfsmaður átt þú rétt á öruggum vinnustað, líkt og aðrir á íslenskum vinnumarkaði. Þér eru tryggð ákveðin réttindi varðandi laun og önnur kjör samkvæmt íslenskum kjarasamningum.

Lög um útsenda starfsmenn og skyldur erlendra þjónustuveitenda eiga að tryggja að erlent starfsfólk sem kemur tímabundið til Íslands á vegum erlendra þjónustufyrirtækja starfi hér með löglegum hætti og njóti þeirra réttinda sem íslensk lög og reglur kveða á um.

Hér finnur þú upplýsingar um réttindi þín og svör við algengum spurningum útsendra starfsmanna.