Fara beint í efnið

Erlend þjónustufyrirtæki og útsendir starfsmenn (Posting.is)

Keðjuábyrgð í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð

Notendafyrirtæki ber óskipta ábyrgð á grundvelli þjónustusamnings á vangoldnum launum sem og öðrum vangreiðslum til starfsfólks erlends þjónustufyrirtækis.

Ábyrgð notendafyrirtækis nær einnig til starfsfólks fyrirtækja sem hafa gert þjónustusamninga sem byggja á upphaflegum þjónustusamningi. Á það við þrátt fyrir að ekki sé um beint samningssamband milli þeirra og notendafyrirtækisins að ræða. Þetta kallast keðjuábyrgð.

Ef notendafyrirtækið er hluti af fyrirtækjasamstæðu ber móðurfélagið sameiginlega ábyrgð með því.

Hið sama á við um annað félag ef það er undir stjórn sama aðila og notendafyrirtækið.

Ábyrgðin nær til:

  • vangoldinna lágmarkslauna,

  • annarra vangoldinna launaþátta,

  • vangoldinna launa fyrir yfirvinnu,

  • vangoldinna launa í veikindum og slysatilvikum og

  • vangoldinna launatengdra gjalda á Íslandi

Ábyrgðin nær þó ekki til vangoldinna orlofslauna.

Krafa vegna vangoldinna launa

Ef starfsmaður hefur ekki fengið greidd laun eða aðrar greiðslur sem hann á rétt á getur hann, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, beint skriflegri kröfu til notendafyrirtækis.

Frestur til að senda kröfu

Krafan þarf að berast notendafyrirtækinu innan fjögurra mánaða frá gjalddaga hennar.

Ef notendafyrirtækið vissi eða mátti vita að laun, eða aðrar greiðslur, hefðu bersýnilega ekki verið greidd getur dómstóll ákveðið að lengja fjögurra mánaða frestinn í allt að tólf mánuði.

Hvernig skal senda kröfuna?

Krafan skal vera skrifleg og má senda rafrænt eða á pappír.

Í henni þarf að koma fram:

  • hvaða greiðslur eru vangoldnar,

  • hvenær þær féllu í gjalddaga,

  • í hverju vanefnd fyrirtækisins felst og

  • hvernig starfsmaðurinn óskar eftir að fá svar frá notendafyrirtækinu.

Krafa telst einnig hafa borist ef samráðsnefnd samkvæmt lögum um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda hefur tilkynnt notendafyrirtækinu um vangreiðslurnar.

Hvað gerist þegar notendafyrirtæki hefur borist krafa?

Þegar krafa hefur borist skriflega skal notendafyrirtækið án ástæðulausrar tafar:

  • Tilkynna fyrirtækinu, sem á að hafa vangreitt, um kröfuna.

  • Skora á það að greiða kröfuna eða gera grein fyrir afstöðu sinni innan sjö virkra daga frá því að greiðsluáskorunin barst.

Ef notendafyrirtækið telur vafa leika á réttmæti kröfunnar, hyggst óska eftir umsögn samráðsnefndar eða telur að undanþága frá ábyrgð eigi við, skal það upplýsa bæði starfsmanninn og fyrirtækið um það innan sjö virkra daga. Afstaða þess skal vera skrifleg og rökstudd.

Ef notendafyrirtækið gerir ekki slíka athugasemd ber því að greiða kröfuna innan 24 virkra daga frá því að hún barst.

Umsögn samráðsnefndar

Bæði starfsmaðurinn og notendafyrirtækið geta óskað eftir umsögn samráðsnefndar um réttmæti kröfunnar.

Þegar umsögn nefndarinnar liggur fyrir skal notendafyrirtækið tilkynna starfsmanninum og fyrirtækinu um endanlega afstöðu sína innan þriggja virkra daga.

Endurkröfuréttur notendafyrirtækis

Ef notendafyrirtækið greiðir kröfuna getur það dregið greiðsluna frá því sem það skuldar fyrirtækinu sem það er í samningssambandi við.

Ef málið fer fyrir dómstóla

Ef starfsmaður höfðar mál hér á landi vegna ábyrgðar notendafyrirtækis þarf hann að:

  • Höfða málið innan átta mánaða frá því að afstaða notendafyrirtækisins til kröfunnar lá fyrir.

  • Stefna fyrirtækinu sem vangreiddi launin fyrir sama dómstóli sem og notendafyrirtækinu.