Fara beint í efnið

Erlend þjónustufyrirtæki og útsendir starfsmenn (Posting.is)

Undanþágur frá keðjuábyrgð í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð

Notendafyrirtæki getur í ákveðnum tilvikum verið undanþegið ábyrgð á vangoldnum launum og eða öðrum vangreiðslum starfsfólks erlends þjónustufyrirtækis.

Á það við þegar um er að ræða eftirfarandi:

  • Þjónustan varir skemur en tíu virka daga
    Þegar fyrirtæki veitir notendafyrirtæki þjónustu skemur en samtals tíu virka daga á tólf mánaða tímabili.

  • Krafan kemur frá stjórnanda, eiganda eða tengdum aðila
    Þegar um er að ræða kröfu framkvæmdastjóra, stjórnarmanna eða eiganda þess fyrirtækis sem um ræðir sem og kröfu maka eða annarra skyldmenna framangreindra aðila eða annarra sem eru þeim það nákomnir að unnt er að sýna fram á að kröfur þeirra séu óréttmætar með tilliti til tengsla þeirra.

  • Fyrirtækið verður gjaldþrota
    Ef fyrirtæki verður gjaldþrota gilda lög um Ábyrgðasjóð launa, enda séu skilyrði laganna uppfyllt. Þá á ábyrgð notendafyrirtækis á vangoldnum greiðslum ekki við.

  • Notendafyrirtækið hefur reynt að tryggja launagreiðslur
    Þegar notendafyrirtæki hefur reynt að tryggja, eins og því er unnt, að fyrirtæki greiði starfsfólki sínu laun í samræmi við ákvæði gildandi kjarasamninga í viðkomandi starfsgreinum á því svæði þar sem vinnan fer fram.

    Svo sem með því að afla eftirfarandi upplýsinga: Nafn hvers starfsmanns, afrit af ráðningarsamningi hvers starfsmanns, afrit af vinnutímaskýrslum hvers starfsmanns, afrit af launaseðlum hvers starfsmanns og staðfestingu á að laun hvers starfsmanns hafi verið greidd í samræmi við það sem fram kemur á launaseðli, meðal annars hvað varðar launafjárhæð.