Fara beint í efnið

Erlend þjónustufyrirtæki og útsendir starfsmenn (Posting.is)

Ábyrgð notendafyrirtækja

Ef notendafyrirtæki kaupir þjónustu af erlendu þjónustufyrirtæki þarf notendafyrirtækið að ganga úr skugga um að erlenda þjónustufyrirtækið hafi upplýst um starfsemi sína til Vinnueftirlitsins.

Í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð þarf einnig að fá upplýsingar um undirverktaka sem koma að verkefninu og láta Vinnueftirlitið vita ef erlenda þjónustufyrirtækið hefur ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína.

Staðfesting á að upplýsingum hafi verið skilað

Óska þarf eftir skriflegri staðfestingu frá erlenda þjónustufyrirtækinu um að það hafi upplýst um starfsemina til Vinnueftirlitsins.

Staðfestingin þarf að berast innan tíu virkra daga frá því að starfsemin hefst á Íslandi.

Ef staðfestingin berst ekki þarf að upplýsa um það til Vinnueftirlitsins og gefa upp:

  • Nafn erlenda þjónustufyrirtækisins.

  • Heimilisfang þess í heimalandinu.

  • Netfang fyrirtækisins.

  • Nafn og netfang fyrirsvarsmanns.

  • Tegund þjónustunnar sem veitt er á Íslandi.

Ef nafn fyrirsvarsmanns er ekki þekkt ber að upplýsa um nafn þess aðila sem kom fram fyrir hönd fyrirtækisins við gerð þjónustusamningsins og netfang hans.

Notendafyrirtæki skal afhenda trúnaðarmanni viðkomandi stéttarfélags afrit af skriflegu staðfestingunni óski hann eftir því. Ef enginn trúnaðarmaður er á vinnustaðnum skal afhenda viðkomandi stéttarfélagi afritið, sé þess óskað.

Ef grunur er um brot

Ef notendafyrirtæki verður vart við að fyrirtæki sem það hefur gert þjónustusamning við brjóti gegn lögum, svo sem hvað varðar laun eða önnur starfskjör starfsfólks síns, skal tilkynna um það til Vinnueftirlitsins án ástæðulausrar tafar.

Upplýsingar um undirverktaka

Í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð, geta fleiri en eitt fyrirtæki komið að sama verkefni sem aðalverktakar og undirverktakar. Á það til dæmis við um byggingu, viðgerðir, breytingar og niðurrif mannvirkja.

Ef þjónustufyrirtæki ræður annað fyrirtæki til að framkvæma hluta verksins ber því að afhenda upphaflegu notendafyrirtæki upplýsingar um að öll fyrirtæki, sem koma að verkefninu hafi, uppfyllt skyldur sínar gagnvart Vinnueftirlitinu.

Þetta á við um alla undirverktaka sem taka þátt í verkinu hvort sem þeir vinna allt verkið eða aðeins hluta þess.