Fara beint í efnið

Verklag við uppljostrun starfsfólks um lögbrot eða aðra ámælisverða háttsemi

Markmið laga

Markmið laga um vernd uppljóstrara er að stuðla að því að upplýst verði um:

  • lögbrot

  • aðra ámælisverða háttsemi

Til að ná markmiðum laganna kveða þau á um heimild fyrir starfsfólk til að greina frá upplýsingum eða miðla gögnum í góðri trú um brot á lögum eða aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi vinnuveitanda síns til aðila innan fyrirtækisins, lögregluyfirvalda eða annarra opinberra eftirlitsaðila sem við eiga.

Til dæmis:

  • umboðsmanns Alþingis

  • ríkisendurskoðanda

  • Vinnueftirlitsins

Þegar um er að ræða starfsfólk ríkis, sveitarfélaga og fyrirtækja sem eru að 51% hluta eða meira í eigu hins opinbera er ekki aðeins um að ræða heilmid til að upplýsa heldur skyldu.

Vernd starfsfólks

Lögin kveða á um ákveðna vernd til handa starfsfólki sem upplýsir um lögbrot eða aðra ámælisverða háttsemi. Verndin er bundin því skilyrði að starfsmaðurinn fari að ákvæðum laganna og fylgi þeim málsmeðferðarreglum sem þar eru settar.

Verndin felur meðal annars í sér að:

  • Miðlun upplýsinga telst hvorki brot á þagnar- eða trúnaðarskyldu sem starfsmaður er bundinn af né heldur felur slík miðlun í sér refsi- né skaðabótaábyrgð á viðkomandi og getur ekki leitt til stjórnsýsluviðurlaga eða íþyngjandi úrræða að starfsmannarétti.

  • Óheimilt er að láta starfsmann sæta óréttlátri meðferð, en til slíkrar meðferðar telst til dæmis að rýra réttindi, breyta starfsskyldum á íþyngjandi hátt eða segja viðkomandi upp störfum.

  • Komi til ágreinings fyrir dómi um stöðu starfsmanns skal honum veitt gjafsókn í héraði, fyrir Landsrétti og Hæstarétti.

  • Móttakandi upplýsinga eða gagnanna skal gæta leyndar um persónuupplýsingar sem honum berast um þann sem miðlar upplýsingum eða gögnum nema hinn síðarnefndi veiti afdráttarlaust samþykki sitt fyrir því að leynd sé aflétt.

Verklag starfsfólks við uppljóstrun

Innri uppljóstrun

Meginreglan er að innri uppljóstrun kemur á undan ytri uppljóstrun. Með innri uppljóstrun er átt við að starfsmaður greinir frá upplýsingum eða miðli gögnum í góðri trú um brot á lögum eða aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi vinnuveitenda síns til aðila innan fyrirtækisins eða annarra opinberra eftirlitsaðila sem við eiga

Ytri uppljóstrun

Meginreglan er að ytri uppljóstrun, til dæmis til fjölmiðla, er ekki heimil nema innri uppljóstrun hafi fyrst verið reynd til þrauta.

Með ytri uppljóstrun er átt við að starfsmaður greini frá upplýsingum eða miðli gögnum í góðri trú um brot á lögum eða aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi vinnuveitenda síns til aðila utan fyrirtækisins, til dæmis fjölmiðla.

Slík uppljóstrun er þó háð eftirfarandi skilyrðum:

  1. Starfsmaður verður að jafnaði að hafa reynt innri uppljóstrun til þrauta.

  2. Miðlunin verður að vera í góðri trú, það er að starfsmaður hafi góða ástæðu til að telja að gögnin eða upplýsingarnar sem miðlað er séu réttar, það sé í þágu almennings að miðla þeim og að hann eigi ekki annan kost til að koma í veg fyrir þau brot eða þá háttsemi sem um ræðir.

  3. Starfsmaður verður að hafa réttmæta ástæðu til að ætla að um háttsemi sé að ræða sem getur varðað fangelsisrefsingu.

Ytri uppljóstrun er einnig heimil í algjörum undantekningartilvikum þegar innri uppljóstrun kemur af gildum ástæðum ekki til greina, en með því er átt við að miðlunin teljist í þágu svo brýnna almannahagsmuna að hagsmunir vinnuveitanda eða annarra verða að víkja fyrir hagsmunum af því að upplýsingum sé miðlað til utanaðkomandi aðila, svo sem til að vernda:

  • Öryggi ríkisins eða hagsmuni ríkisins á sviði varnarmála

  • Efnahagslega mikilvæga hagsmuni ríkisins

  • Heilsu manna

  • Umhverfið

Viðbrögð móttakanda

Móttakandi upplýsinganna innan fyrirtækis eða stofnunar, það er vinnuveitandi eða fulltrúi hans, skal greina starfsmanninum frá því hvort upplýsingarnar hafi orðið honum tilefni til athafna og þá hverra.

Æskilegt er að vinnuveitandi kveði á um tímamörk í verklagsreglum svo starfsmaður túlki ekki tafir sem höfnun erindis eða sem aðgerðarleysi af hálfu vinnuveitanda.

Verklagsreglur hvers vinnustaðar

Lögin gera ráð fyrir að í fyrirtækjum eða á öðrum vinnustöðum þar sem að jafnaði eru 50 starfsmenn á ársgrundvelli verði, í samráði við starfsmenn, settar reglur um verklagið. Tilgangur þess er að auðvelda starfsmönnum að nýta sér lögin og til að auðvelda vinnuveitendum að bregðast við slíkri miðlun.

Reglurnar skulu vera skriflegar og þar skal kveðið á um móttöku, meðhöndlun og afgreiðslu tilkynninga um hugsanleg lögbrot eða aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi vinnuveitandans. Reglurnar skulu vera aðgengilegar öllum starfsmönnum og mega á engan hátt takmarka rétt þeirra samkvæmt lögum þessum.

Hér eru nokkur atriði sem atvinnurekendur verða að hafa í huga við gerð slíkra reglna:

  • Slíkar reglur eiga að vera til staðar í fyrirtækjum eða á öðrum vinnustöðum með 50 starfsmenn eða fleiri.

  • Við gerð slíkra reglna skal hafa samráð við starfsfólk.

  • Reglurnar skulu vera skriflegar og aðgengilegar öllum starfsmönnum.

  • Reglurnar mega ekki takmarka rétt starfsmanna samkvæmt lögum um vernd uppljóstrara.

  • Í reglunum skal fjalla um hvernig meðhöndlun erinda eigi að vera innan fyrirtækja og hver tekur við þeim.

  • Skynsamlegt er að kveða á um hvenær greina eiga starfsmanni frá því að upplýsingarnar hafi orðið tilefni til athafna og þá hverra eða hvort upplýsingarnar hafi ekki þótt tilefni til athafna, til að starfsmaður túlki ekki tafir sem höfnun erindis eða sem athafnaleysi.

Í lögunum er gert ráð fyrir að fjármálaráðherra setji sér slíkra reglur fyrir opinberar stofnanir og lögaðila í opinberri eigu. Sveitarstjórnir skulu setja reglur um þá vinnustaði sem undir viðkomandi sveitarfélag heyra og Vinnueftirlitið skal birta fyrirmynd að reglum fyrir aðra vinnustaði á vef sínum. Lögin gera svo ráð fyrir því að Vinnueftirlitið hafi eftirlit með því að vinnuveitendur setji sér slíkar reglur.

Hér er hægt að nálgast fyrirmynd að reglum um verklag við uppljóstrun starfsfólks.

Þjónustuaðili

Vinnu­eft­ir­litið

Vinnueftirlitið

Hafðu samband

Sími: 550 4600

Netfang: vinnueftirlit@ver.is

Afgreiðslu­tími þjón­ustu­vers

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 15

Föstudaga: 9 til 14

Kennitala

420181-0439