Smelltu á Sækja um.
Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum.
Veldu Umsóknir.
Veldu umsóknina Maka- og umönnunarbætur.
Fylltu út umsóknina og hengdu við fylgigögn ef þú ert með þau tiltæk.
Smelltu á senda umsókn.
Umsóknir eru samþykktar í hámark 1 ár í senn.
Staða umsóknar
Þú getur fylgst með stöðu umsókna á Mínum síðum undir Staða umsókna. Ef það vantar gögn færðu tölvupóst og tilkynningu á Mínum síðum undir Mín skjöl.
Vinnslutími annarra umsókna
Niðurstaða
Þegar niðurstaða liggur fyrir færðu tölvupóst og tilkynningu á Mínum síðum TR undir Mín skjöl.
Þar getur þú einnig séð upphæðir út árið í greiðsluáætlun.
Ef þú ert ósammála ákvörðuninni getur þú:
óskað eftir rökstuðningi á Mínum síðum TR,
sent erindi til umboðsmanns viðskiptavina TR,
Fyrirkomulag greiðslna
Maka- og umönnunarbætur eru greiddar fyrirfram fyrsta dags hvers mánaðar.
Þjónustuaðili
Tryggingastofnun