Styrkjatorg
Styrkjatorgið er í vinnslu og fleiri skráningar eiga eftir að bætast við. Áhersla Styrkjatorgs er á samkeppni um takmarkað framboð, en ekki þann stuðning sem einstaklingar eða fyrirtæki eiga lagalegan rétt á.

Leit
12 styrkir fundust
Tækniþróunarsjóður
Rannsóknamiðstöð Íslands
Fyrirtækjastyrkur Fræ/Þróunarfræ
Styrkir til ungra frumkvöðlafyrirtækja eða einstaklinga. Fræ er undirbúningsstyrkur fyrir verkefni á hugmyndastigi og Þróunarfræ er forkönnunarstyrkur samvinnuverkefna um þróun.
Opið er allt árið
Nýsköpun, Innlent
Stuðningur við útgáfu bóka á íslensku
Rannsóknamiðstöð Íslands
Styrkur fyrir bókaútgefendur til að gefa út bækur á íslensku
Endurgreiðsla til bókaútgefenda á hluta kostnaðar vegna útgáfu bóka á íslensku sem eru aðgengilegar almenningi með opinberri sölu, láni eða leigu.
Opið er allt árið
Innlent, Menning og listir
Frádráttur frá tekjum erlendra sérfræðinga
Rannsóknamiðstöð Íslands
Skattfrádráttur erlendra sérfræðinga
Skattalegur hvati til að laða sérfræðinga til Íslands í rannsóknum, þróun, nýsköpun, framleiðslu, stjórnun, skipulagningu, markaðssetningu, fjármálum, upplýsingatækni, kennslu ofl.
Opið er allt árið
Nýsköpun, Rannsóknir, Innlent
Eyvör NCC-IS
Rannsóknamiðstöð Íslands
Netöryggisstyrkur Eyvarar
Styrkur fyrir opinberar stofnanir og lítil og meðalstór fyrirtæki til að efla netöryggi og varnir, og stuðla þannig að öryggi gagnvart netárásum.
Frestur til 01. desember, kl. 15:00
01.10.2026 - 01.12.2026
Innlent, Nýsköpun, Rannsóknir
Tækniþróunarsjóður
Rannsóknamiðstöð Íslands
Einkaleyfastyrkur
Styrkir vegna undirbúnings og umsóknar um einkaleyfi, bæði vegna forgangsréttar og umsóknar í alþjóðlegu ferli.
Opið er allt árið
Nýsköpun, Innlent
Uppbyggingarsjóður EES
Rannsóknamiðstöð Íslands
Verkefnastyrkir til alþjóðlegra samstarfsverkefna
Verkefnastyrkir til samstarfs innan 15 viðtökuríkja Uppbyggingarsjóðs EES til að efla þróun og samstarf.
Sjá lýsingu
Alþjóðlegt, Menning og listir, Nám og kennsla, Rannsóknir, Nýsköpun, Umhverfismál, Starfs- og símenntun
Æskulýðssjóður
Rannsóknamiðstöð Íslands
Verkefnastyrkur Æskulýðssjóðs
Æskulýðssjóður veitir styrki til verkefna á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka sem gera þeim kleift að bjóða fjölbreyttari starfsemi fyrir félaga sína.
Frestur til 15. október, kl. 15:00
31.08.2026 - 15.10.2026
Innlent, Æskulýðsstarf og íþróttir
Enterprise Europe Network
Rannsóknamiðstöð Íslands
Stafræn vegferð með Enterprise Europe Network
Enterprise Europe Network aðstoðar lítil og meðalstór fyrirtæki við að innleiða stafrænar lausnir með sérsniðinni ókeypis ráðgjöf eftir ítarlegt mat á þörfum og áskorunum.
Opið er allt árið
Nýsköpun, Alþjóðlegt