Sjóður
Innviðasjóður
Staða
Opið fyrir umsóknir
Frestur til 29. október, kl. 15:00
Umsóknartímabil
11.09.2026 - 29.10.2026
Styrkjaflokkun
Innlent, Rannsóknir
Tegund
Fjármögnun
Miðast við íslenskan tíma
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands
Styrkir Innviðasjóðs
Hlutverk Innviðasjóðs er að byggja upp rannsóknarinnviði á Íslandi. Markmiðið með sjóðnum er að efla innlendar vísindarannsóknir með því að skapa nýja möguleika til rannsókna.
Sjóður
Innviðasjóður
Staða
Opið fyrir umsóknir
Frestur til 29. október, kl. 15:00
Umsóknartímabil
11.09.2026 - 29.10.2026
Styrkjaflokkun
Innlent, Rannsóknir
Tegund
Fjármögnun
Miðast við íslenskan tíma
Styrkir Innviðasjóðs
Opið fyrir umsóknir / Frestur til 29. október, kl. 15:00
Umsóknarfrestur rennur út klukkan 15:00 að íslenskum tíma.
Innviðasjóður veitir styrki til kaupa á tækjum, gagnagrunnum og hugbúnaði og öðrum þeim búnaði sem telst mikilvægur fyrir framfarir í rannsóknum.
Innviðasjóður veitir eftirfarandi styrktegundir:
Tækjakaupastyrkir
Uppbyggingarstyrkir
Uppfærslustyrkir
Aðgengisstyrkir
Innviðir á vegvísi
Hverjir geta sótt um?
Háskólar, opinberar rannsóknastofnanir og fyrirtæki.
Hvernig er sótt um?
Umsóknum er skilað gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís - Mínar síður.
Með umsókn þurfa að fylgja (viðaukar):
Lýsing á innviðum sem sótt er um.
Verðtilboð. Athugið að verð miðast við upphæð án VSK.
Staðfesting á mótframlagi. Mótframlag er ekki undanþegið VSK.
Ferilskrá forsvarsmanns umsóknar og tengiliða meðumsækjenda.
Staðfesting á þátttöku fyrir allar þær stofnanir sem standa að umsókninni.
Athugið að engin önnur fylgigögn skulu fylgja umsókn.
Svör við spurningum
Allar fyrirspurnir skal senda á netfangið innvidasjodur@rannis.is
Umsókn má vera á íslensku eða ensku.
Þjónustuaðili