Innviðasjóður
Innviðasjóður veitir háskólum, opinberum rannsóknastofnunum og fyrirtækjum styrki til kaupa, uppbyggingar og meiriháttar endurbóta á rannsóknarinnviðum, svo sem tækjum, gagnagrunnum, hugbúnaði og öðrum búnaði sem er mikilvægur fyrir framgang vísindarannsókna á Íslandi.
Einnig er hægt að sækja um styrki til að standa straum af kostnaði vegna aðgengis að innlendum eða erlendum rannsóknarinnviðum.
Fyrirtæki geta aðeins verið meðumsækjendur og skilyrði er að háskóli eða opinber stofnun leiði umsókn og að innviðir sem sótt er um verði í eigu háskóla, opinberra stofnana eða fyrirtækja í eigu hins opinbera.
Umsóknum skal skila á rafrænu formi í gegnum umsóknarkerfi Rannís (Mínar síður Rannís). Ekki er tekið við umsóknum á öðru formi.
Vinsamlegast kynnið ykkur reglur Innviðasjóðs áður en sótt er um:
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands