Innviðasjóður
Mat og úthlutun
Sérstakt fagráð metur allar umsóknir og gerir tillögu að úthlutun til stjórnar Innviðasjóðs sem tekur endanlega ákvörðun byggða á almennum áherslum Vísinda- og tækniráðs, úthlutunarstefnu sjóðsins sem samþykkt er af vísindanefnd og tækninefnd Vísinda- og tækniráðs og fjárframlögum í sjóðinn.
Mat á umsóknum
Við mat á umsóknum lítur fagráð meðal annars til eftirfarandi þátta:
Mikilvægi innviðanna fyrir framfarir í rannsóknum á Íslandi og fyrir rannsóknastarf umsækjenda.
Hvort fjárfesting í innviðunum skapi ný tækifæri til rannsókna og/eða tengist verkefnum sem hlotið hafa styrki úr Rannsóknasjóði, markáætlunum eða öðrum opinberum samkeppnissjóðum.
Hvort fyrirhugað sé samstarf um nýtingu innviðanna milli stofnana eða milli stofnana og fyrirtækja.
Raunhæfni kostnaðar- og fjármögnunaráætlana.
Hvort innviðirnir stuðli að menntun, þjálfun og nýliðun vísinda- og fræðimanna.
Innviðir sem byggðir eru upp með styrk úr Innviðasjóði skulu, eftir því sem kostur er, vera aðgengilegir öðrum rannsóknahópum. Umsækjendur skulu gera grein fyrir því hvernig aðgengi að innviðunum verður háttað.
Flokkun umsókna
Að mati loknu eru umsóknir flokkaðar í þrjá flokka:
I. flokkur – Umsóknir sem fagráð telur framúrskarandi og eigi að njóta forgangs við úthlutun styrkja.
II. flokkur – Umsóknir sem teljast styrkhæfar og hljóta styrk ef nægt fjármagn er til ráðstöfunar.
III. flokkur – Umsóknir sem fagráð telur ekki rétt að styrkja.
Umsækjendur eiga ekki undir nokkrum kringumstæðum að hafa samband við stjórnarmenn eða fagráðsmenn meðan mat umsókna fer fram. Brot á þessu ákvæði getur leitt til þess að umsókn verði vísað frá.
Öllum fyrirspurnum skal beint til Innviðasjóðs, á netfang sjóðsins innvidasjodur@rannis.is
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands