Fara beint í efnið

Umsóknarferli

Innviðasjóður auglýsir eftir umsóknum einu sinni á ári. Umsóknakerfið opnar að minnsta kosti 6 vikum áður en umsóknarfrestur rennur út. Aðeins er tekið við umsóknum sem skilað er í rafrænt umsóknarkerfi Rannís - Mínar síður. Ef notandi er erlendis gæti þurft að nota auðkennisappið frekar en auðkenningu gegnum símanúmer.

Fylgigögn umsókna (viðaukar)

  • Lýsing á innviðum sem sótt er um.

  • Verðtilboð. Athugið að verð miðast við upphæð án VSK.

  • Staðfesting á mótframlagi. Mótframlag er ekki undanþegið VSK.

  • Ferilskrá forsvarsmanns umsóknar og tengiliða meðumsækjenda.

  • Staðfesting á þátttöku fyrir allar þær stofnanir sem standa að umsókninni.

Athugið að engin önnur fylgigögn skulu fylgja umsókn.

Styrkur getur numið allt að 75% af heildarkostnaði innviða án virðisaukaskatts. Ekki er hægt að sækja um styrk fyrir kostnaði sem greiddur hefur verið áður en styrkur er veittur.

Handbók Innviðasjóðs gildir fyrir umsækjendur og fagráð sjóðsins. Markmið hennar er að auka gegnsæi ferlisins fyrir alla sem koma að því, allt frá auglýsingu umsóknarfrests að styrkveitingum. Í handbókinni eru reglur sjóðsins og ýmsar gagnlegar upplýsingar svo sem um réttindi og skyldur styrkþega. Handbókin er gefin út í tengslum við auglýsta umsóknarfresti.

Skilyrði úthlutunar

Umsóknir þurfa að uppfylla öll skilyrði um styrkhæfi til að fá faglegt mat. Ef í ljós kemur meðan á matsferli stendur að eitt eða fleiri skilyrði eru ekki uppfyllt verður umsókn dregin úr matsferli.

Gert er ráð fyrir að umsækjandi leggi til mótframlag að lágmarki 25%.

Framlag Innviðasjóðs skal að lágmarki vera 3 milljónir króna fyrir tækjakaup, uppbyggingu, uppfærslu eða viðhalds.  Ekkert lágmark er á aðgengisstyrk.