Sjóður
FaraBara
Staða
Opið fyrir umsóknir
Opið er allt árið
Styrkjaflokkun
Alþjóðlegt, Nám og kennsla
Tegund
Ráðgjöf og tengsl
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands
Upplýsingastofa um nám erlendis
Vefurinn Farabara.is er vefur upplýsingastofu um nám erlendis og styrki. Fólk sem hyggur á nám erlendis getur fundið ýmsar gagnlegar upplýsingar á vefnum.
Sjóður
FaraBara
Staða
Opið fyrir umsóknir
Opið er allt árið
Styrkjaflokkun
Alþjóðlegt, Nám og kennsla
Tegund
Ráðgjöf og tengsl
Upplýsingastofa um nám erlendis
Opið fyrir umsóknir / Opið er allt árið
Á vef Farabara.is er hægt að leita að upplýsingum um fyrirkomulag náms í ólíkum löndum, til dæmis hvað varðar skólakerfi, skólaárið, umsóknarferli og fleira.
Á vefnum er að finna góð ráð um ferlið við að sækja um nám erlendis.
Hægt er að lesa ráð sem gott er að hafa í huga þegar sótt er um nám erlendis, hvar best sé að byrja og hvaða atriði sé gott að hafa í umsókn.
Farabara.is birtir einnig reynslusögur íslenskra nemenda sem hafa farið í háskólanám erlendis. Hægt er að flokka reynslusögurnar eftir löndum.
Á vefnum er listi yfir námsstyrki í ólíkum löndum sem upplýsingastofan hefur safnað saman. Vinsamlegast athugið að listinn er ekki tæmandi og styrkirnir eru ekki í umsjá Rannís.
Starfsfólk upplýsingastofu um nám erlendis svarar fyrirspurnum í tölvupósti og hægt er að bóka fundi ef óskað er eftir persónulegri ráðgjöf.
Starfsfólk aðstoðar ekki við að gera umsóknir heldur veitir almennar ráðleggingar sem geta gagnast í umsóknarferlinu.
Öll þjónusta er gjaldfrjáls.
Hverjir geta sótt um?
Öll þau sem hyggja á nám erlendis eru hvött til að skoða þá styrki sem taldir eru upp á vefnum. Listinn er ekki tæmandi en gefur góða hugmynd um þá styrki sem eru í boði fyrir íslenska námsmenn erlendis.
Hvernig er sótt um?
Einstaklingar sjá sjálfir um að skoða styrkjamöguleika á Farabara.is og hafa samband við þá sjóði sem auglýstir eru.
Svör við spurningum
Miriam Petra Ómarsdóttir Awad
Verkefnastjóri
Sími: 515 5845
Netfang: miriam@rannis.is
Þjónustuaðili