Sjóður
Tækniþróunarsjóður
Staða
Opið fyrir umsóknir
Opið er allt árið
Styrkjaflokkun
Nýsköpun, Innlent
Tegund
Fjármögnun
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands
Fyrirtækjastyrkur Fræ/Þróunarfræ
Styrkir til ungra frumkvöðlafyrirtækja eða einstaklinga. Fræ er undirbúningsstyrkur fyrir verkefni á hugmyndastigi og Þróunarfræ er forkönnunarstyrkur samvinnuverkefna um þróun.
Sjóður
Tækniþróunarsjóður
Staða
Opið fyrir umsóknir
Opið er allt árið
Styrkjaflokkun
Nýsköpun, Innlent
Tegund
Fjármögnun
Fyrirtækjastyrkur Fræ/Þróunarfræ
Opið fyrir umsóknir / Opið er allt árið
Allar umsóknir sem berast eru teknar fyrir og úthlutun tilkynnt að lágmarki tvisvar á ári.
Fræ er undirbúningsstyrkur til ungra frumkvöðlafyrirtækja eða einstaklinga og er sniðinn að verkefnum á hugmyndastigi eða á frumstigi í þróun afurðar.
Þróunarfræ er forkönnunarstyrkur til ungra frumkvöðlafyrirtækja og einstaklinga til að ráðast í þróunarsamvinnuverkefni.
Hámarksstyrkur er 2.000.000 kr.
Ekki er gerð mótframlagskrafa í þessum styrkjaflokki.
Skil á niðurstöðum verkefna þurfa að liggja fyrir innan 12 mánaða frá umsóknardegi.
Hverjir geta sótt um?
Fyrirtæki yngri en 5 ára og einstaklingar.
Hvernig er sótt um?
Alltaf er opið fyrir umsóknir. Umsóknir sem berast eru teknar fyrir og úthlutun tilkynnt að lágmarki tvisvar á ári.
Umsóknum er skilað gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís.
Svör við spurningum
Sendið fyrirspurnir til Tækniþróunarsjóðs: taeknithrounarsjodur@rannis.is
Símatímar starfsfólks eru mánudaga til fimmtudaga milli kl. 10-12 í síma 515 5800
Þessi styrkjaflokkur fellur undir reglur um minni háttar aðstoð, sjá reglur Tækniþróunarsjóðs.
Sjá nánar:
Leiðbeiningar og reglur Tækniþróunarsjóðs
Um matsferli og skýrsluskil hjá Tækniþróunarsjóði
Þjónustuaðili