Starfsemi veiðifélaga
Samþykktir veiðifélaga
Til þess að veiðifélag geti skipulagt veiði á tilteknu veiðisvæði þarf félagið að starfa á grundvelli samþykkta sem veiðirétthafar setja félaginu og Fiskistofa staðfestir.
Samþykktir veiðifélaga skulu innihalda eftirtalin atriði:
nafn félags.
heimilisfang og varnarþing.
félagssvæði og skulu þar taldar upp allar þær fasteignir eða einstaklingar og lögaðilar sem veiðiréttindi eiga samkvæmt II. kafla laga um lax- og silungsveiði.
verkefni félagsins.
skipun og starfssvið félagsstjórnar.
málsmeðferðarreglur, reikninga félags og endurskoðun.
skyldu til framlagningar fjárhagsáætlunar fyrir komandi starfsár á aðalfundi félags.
upplýsingar um meðferð afla félags eða arðs og greiðslu kostnaðar af starfsemi félags.

Þjónustuaðili
Fiskistofa