Deildir
Á barnadeild er legudeild, dag- og göngudeild. Deildin er staðsett á 3. hæð í D-álmu og er aðkoma um inngang D. Utan dagvinnutíma er inngangi læst, en hægt að notast við dyrasíma.
Bráðamóttaka sinnir móttöku bráðveikra og slasaðra
Opið allan sólarhringinn. Gengið er inn um inngang C.
Verkefni deildarinnar eru fjölbreytt. Það eru hjúkrunarstýrðar móttökur eins og sáramóttaka og endurkoma frá BMT og eftir útskrift af deildum. Brotaendurkoma, sérfræðingsmóttökur; skurðlæknar, bæklunarlæknar og fæðingalæknar. Smáaðgerðastofa þar sem fer fram fjölbreytt starfsemi eins og þvagfærarannsóknir,
leghálsspeglandir, sprautur í augnbotna, handaraðgerðir og ýmsar aðrar smáaðgerðir. Það eina sem setur takmörk við að aðgerðir séu gerðar á smáaðgerðastofu er að hægt sé að gera þær í staðdeyfingu.
Á deildinni er veitt meðferð fyrir sjúklinga með blóðsjúkdóma og krabbamein á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum.
Á fimmtudögum og föstudögum fara fram sérhæfðar lyfjagjafir með líftæknilyfjum, mótefnum og öðrum lyfjum. Þá eru einnig framkvæmdar ýmsar rannsóknir og fræðsla fer fram.
Grunnur starfsins er þverfagleg teymisvinna í samvinnu við sjúklinga og fjölskyldur þeirra.
Í teymunum starfa:
læknar
hjúkrunarfræðingar
sjúkraþjálfarar
iðjuþjálfar
félagsráðgjafi
sjúkraliðar
aðstoðarfólk
Fæðingadeild annast meðgöngueftirlit, fæðingaraðstoð og mæðravernd auk þess að framkvæma skoðanir á æxlunarfærum kvenna, svo sem vandamála snemma á meðgöngu eða vegna sjúkdóma í leggöngum, leghálsi, legi, eggjastokkum og eggjaleiðurum.
Gengið er inn um inngang B. Fæðingadeild er á 3. hæð.
Vaktsími
463 0129
Gjörgæsludeild tekur til meðferðar sjúklinga frá öllum deildum sjúkrahússins sem þurfa á gjörgæslumeðferð að halda.
Gengið er inn um inngang B.
Vaktsími
463 0110
Geðdeild SAK veitir fullorðinum með geðraskanir margvíslega þjónustu í nánu samstarfi við heilsugæsluna og aðra velferðarþjónustu.
Legudeild - gengið er inn um inngang B.
Sel, dag- og göngudeild - gengið er inn um inngang G.
Sími alla virka daga frá kl. 8 til 12.
463 0202
Á göngudeild lyflækninga fer fram sérhæfð þjónusta við einstaklinga með fjölbreytt heilsufarsvandamál. Starfsmenn deildarinnar hafa sérhæfða þekkingu á ýmsum sviðum og taka móti einstaklingum í skipulögðu eftirliti og meðferðarviðtölum.
Á göngudeild lyflækninga eru sérhæfðar móttökur fyrir hjarta-, lungna-, innkirtla-, meltingar-, gigtar-, nýrna- og minnissjúkdóma og næringarteymi.
Göngudeild lyflækninga
Lyflækningadeild er 23 rúma deild sem sinnir fjölbreyttum hópi sjúklinga á lyflækningasviði.
Lyflækningadeild er á 1.hæð. Inngangur B
Myndgreiningadeild framkvæmir og greinir myndrannsóknir á SAk og sinnir einnig greiningu og ráðgjöf fyrir HSN og HSA. Gengið er inn um inngang C.
Myndgreiningadeild býður upp á þjónustu allan sólarhringinn, allt árið um kring.
Deildin framkvæmir tölvusneiðmyndarannsóknir, segulómrannsóknir, röntgenmyndatökur, röntgenmyndatökur með færanlegu tæki, skyggni/hreyfi röntgenmyndatökur, ómmyndatökur, brjóstamyndatökur og beinþéttnimælingar. Einnig eru framkvæmdar valdar mynd stýrðar sýnatökur og inngripsaðgerðir.
Rannsóknadeild sinnir rannsóknum á sýnum frá sjúklingum, t. d. rannsóknum á blóði, þvagi, saur, mænuvökva, liðvökva, holvökvum og sæðisrannsóknir ásamt því að pakka og senda sýni til annarra aðila ef þörf krefur. Unnið er í dagvinnu og utan þess eru bakvaktir allan sólarhringinn alla daga ársins. Deildin samanstendur af fjórum fagsviðum og er ein sinnar tegundar á landinu m.t.t. fjölbreyttra sviða. Á deildinni eru gerðar rannsóknir í klínískri lífefnafræði, blóðmeinafræði, sýkla- og veirufræði og blóðbankarannsóknir. Á deildinni er móttaka sjúklinga í blóðsýnatöku ásamt því að starfsfólk deildarinnar fer í blóðtökur á deildir tvisvar sinnum daglega. Móttaka sýna frá öðrum stofnunum er einnig á deildinni.
Sjúklingar á skurðlækningadeild eru annað hvort innkallaðir - þ.e. vitað er um komu þeirra, eða mæta fyrir innlögn á innritunarmiðstöð þar sem þeir fara í undirbúningsrannsóknir og fá fræðslu.
Hluti sjúklinga leggst inn brátt, t.d. eftir slys, áverka eða skyndilega versnun á sjúkdómi.
Gengið er inn um inngang B.
Á skurðstofu starfar fjölbreyttur hópur sérhæfðs heilbrigðisstarfsfólks sem sinnir undirbúningi, framkvæmd og eftirfylgd aðgerða.
Sóttheinsun ber ábyrgð á móttöku, hreinsun, skoðun, pökkun, dauðhreinsun og dreifingu skurðáhalda og annars endurnýtanlegs lækningabúnaðar.