Fara beint í efnið
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða

Sjúkrahúsið á Akureyri

Ábendingar vegna þjónustu SAk

Sjúkrahúsið á Akureyri leggur áherslu á að veita örugga og góða heilbrigðisþjónustu þar sem umhyggja og virðing eru höfð að leiðarljósi. Til að geta áfram bætt þjónustuna er mikilvægt að fá endurgjöf, hvort sem hún er jákvæð eða bendir á atriði sem betur má fara.

Þú getur sent okkur athugasemdir eða ábendingar ef þær varða til dæmis:

  • framkomu starfsfólks

  • samskipti

  • upplýsingagjöf

  • aðstöðu og aðbúnað

Ábending vegna þjónustu
Hér getur þú sent inn ábendingu vegna þjónustu.

Ábendingar vegna þjónustu SAk

Sjúkrahúsið á Akureyri hefur það að markmiði að veita fyrirmyndarþjónustu og að notendur þjónustunnar séu sáttir og ánægðir með þá þjónustu sem þeir fá. Hér er hægt að senda inn ábendingar, athugasemdir eða hrós vegna þjónustunnar. Ef um er að ræða ábendingu varðandi þjónustu við sjúkling þarf kennitala sjúklings að fylgja.

Sendandi er


Ferli ábendinga vegna heilbrigðisþjónustu
Til þess að SAk geti brugðist við athugasemdum sem berast verður þú að gefa upp kennitölu og netfang.

Málsmeðferð
Ábendingum vegna heilbrigðisþjónustu og framkomu heilbrigðisstarfsfólks er komið til stjórnenda sem sjá um úrvinnslu erindisins.

Fylgigögn
Ef fylgigögn og skönnuð skjöl eru send með athugasemd um þjónustu þurfa þau að vera í fullnægjandi upplausn og sýna allar upplýsingar sem koma fram á frumgagni.

Umboð
Sé sá er sendir inn athugasemdina annar en sá er efni athugasemdarinnar fjallar um þarf undirritað umboð að fylgja. Án umboðs er ekki hægt að svara ábendingum. Forsjáraðilar geta sent inn ábendingar fyrir hönd ólögráða barna sinna. Ungmenni 16–18 ára eru skv. lögum sjálfstæðir þjónustuþegar í heilbrigðiskerfinu. Því mun svar berast þeim einum, nema skriflegt umboð fylgi beiðninni.

Umboð til aðstandanda

Fyrning athugasemdar
Athugasemd vegna heilbrigðisþjónustu eða framkomu heilbrigðisstarfsfólks skal leggja fram án ástæðulausra tafa. Séu meira en fjögur ár liðin frá málsatvikum, áskilur SAk sér rétt til að vísa erindinu frá nema sérstakar ástæður mæli með að það sé tekið til meðferðar.

Athugasemd vegna látins einstaklings
Aðstandendur látins sjúklings geta sent erindi með sama hætti.

Kvörtun vegna meðferðar
Embætti landlæknis tekur við kvörtunum vegna meðferðar (meintra mistaka eða vanrækslu) í samræmi við ákvæði laga um landlækni og lýðheilsu. Sjá nánar um kvartanir til landlæknis.

Almennar fyrirspurnir
Hér getur þú sent inn almenna fyrirspurn til SAk.

Almenn fyrirspurn

Hér getur þú sent inn almenna fyrirspurn til Sjúkrahússins á Akureyri.

Afrit af sjúkraskrá
Hér getur þú óskað eftir afriti af sjúkraskrá

Beiðni um afrit af sjúkraskrá

Afrit af mæðraskrá
Hér getur þú óskað eftir afriti af mæðraskrá

Beiðni um afrit af mæðraskrá

Athugasemdir vegna reikninga

Ef þú ert með spurningar eða athugasemdir vegna reiknings, hafðu samband við innheimta@sak.is eða hringdu í s. 463-0100 og óskaðu eftir samtali við gjaldkera.

Bótakröfur og bótaskylda

Sjúkrahúsið á Akureyri tekur hvorki við bótakröfum né kveður á um bótaskyldu. Slíkri kröfu skal beint til hlutaðeigandi ábyrgðaraðila svo sem Sjúkratrygginga Íslands, tryggingafélaga eða, þegar við á, til Embættis ríkislögmanns.

Eignartjón
Erindum vegna eignatjóns skal beint til Matsnefndar eignatjóna SAk. Tölvupóstur til matsnefndar eignatjóna.

Persónuverndarfulltrúi SAk
Persónuverndarfulltrúi er óháður og sjálfstæður í störfum sínum og hefur eftirlit með því að öll meðferð persónuupplýsinga í tengslum við starfsemi og rekstur sjúkrahússins sé í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Hægt er að hafa samband við persónuverndarfulltrúa með því að:

  • Senda tölvupóst á personuvernd@sak.is

  • Hringja í 463-0100 og óska eftir símtali frá persónuverndarfulltrúa

  • Senda bréf í pósti merktum: Persónuverndarfulltrúi SAk, Eyrarlandsvegi, 600, Akureyri